Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Smári Jökull Jónsson skrifar 28. júní 2026 13:11 Valgerður Árnadóttir er formaður Hvalavina og hún hefur áhyggjur af komu skipsins Bandero. Vísir/Vilhelm/Arnar Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins.
Skip Watson, Bandero, sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu í gær og kom flugvél Landhelgisgæslunnar auga á það djúpt suður af landinu. Í samtali við fréttastofu segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar að áhöfn Bandero hafi ekki orðið við óskum gæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins. Ekki er kveikt á staðsetningabúnaði þess og tjáði áhöfnin Landhelgisgæslunni að búnaðurinn væri bilaður. Ásgeir segir að 200 mílna efnahagslögsaga Íslands sé alþjóðlegt hafsvæði en skipum beri að fara að fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. „Myndum aldrei beita svona brögðum eða hótunum“ Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu samtaka Paul Watson til landsins og segir Hvalavini ekki samþykka hans aðgerðum. „Við höfum eins og aðrir áhyggjur af þessum hótunum. Við vitum ekki nákvæmlega hvað þær þýða eða hversu alvarlegar aðgerðir hann er að fara í, þetta hljóma eins og skemmdaraðgerðir,“ segir Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina. „Hann segist ætla að klára eitthvað sem hann hóf 1986 og það voru náttúrulega mjög alvarlegar aðgerðir þegar hann sökkti skipunum í Reykjavíkurhöfn. Við erum friðsöm samtök og myndum sjálf aldrei beita svona brögðum eða hótunum,“ bætir Valgerður við. „Mjög líklegt að það fari illa“ Þá kveði nýjar reglugerðir Matvælastofnunar á um að bátarnir skuli stöðvaðir og skutulbyssur skoðaðar geigi skot hvalveiðibáta. „En ef Paul Watson er þarna að elta þá er náttúrulega mjög auðvelt fyrir skotmenn að kenna honum um það sem úrskeiðis fer. Þannig að við höfum sérstakar áhyggjur af því vegna þess að okkur finnst Hvalur hf. eigi algjörlega að bera ábyrgð á því þegar þeir brjóta lög um velferð dýra og að íslensk stjórnvöld eigi þá að grípa inn í.“ Í mars sigldi eitt af skipum Watson utan í norskt skip við Suðurskautið í einni af aðgerðum samtaka hans. Valgerður hefur áhyggjur af því að illa geti farið ef skip Paul Watson mætir á svæðið þar sem hvalveiðar standa yfir. „Það er bara mjög líklegt að það fari illa og það er auðvitað eitthvað sem er málstaðnum til góða, ofbeldisfullar aðgerðir eða eitthvað sem stefnir lífi fólks í voða. Það er ekki eitthvað sem við Hvalavinir styðjum.“
Hvalveiðar Hvalir Dýr Landhelgisgæslan Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira