Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. júní 2026 12:40 Donald Trump, Bandaríkjaforseti, á áttatíu ára afmæli í dag. Vísir/Getty Donald Trump, Bandaríkjaforseti og afmælisbarn dagsins, segir að samkomulag um endalok átaka Bandaríkjanna og Írans verði undirritað í dag en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma.
Trump birti færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær þar sem kemur fram að áætlað sé að samkomulagið verði undirritað í dag og ítrekar að strax eftir undirritun verði Hormússundið opið öllum. BBC greinir frá þessu og segir að sendinefnd frá Katar, sem einnig hefur milligöngu í viðræðunum, hafi komið til Tehran í dag en ekki sé ljóst hvort að koma nefndarinnar hafi áhrif á tímasetningu undirritunar Írans. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmail Baghaei, hafði fyrr lýst yfir efasemdum um tímasetningu undirritunar samkomulagsins. En ríkismiðlar höfðu eftir honum að undirritunin „muni ekki eiga sér stað á morgun“, en „líkurnar á því að gengið verði frá viljayfirlýsingu á næstu dögum séu miklar“. Í gær sögðu fulltrúar Pakistans, sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna, að samkomulagið yrði líklega undirritað innan sólarhrings. Brothætt vopnahlé hefur verið í gildi í Íran frá 7. apríl og ríkin skipst á árásum. Á síðustu vikum hefur Trump ítrekað fullyrt að stjórnvöld væru nálægt samkomulagi. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sagði í gær langt frá því að friður væri í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Þrír dagar eru síðan Trump hótaði að gera öflugar árásir á Íran og hernema Kharg-eyju. Þeim árásum var síðan aflýst sama dag. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. Trump fagnar einnig stórafmæli í dag en hann er áttræður. Hann hyggst halda stærðarinnar bardagasýningu á grasfleti Hvíta hússins í tilefni afmælisins.
Íran Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira