„Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 4. júní 2026 13:31 Guðfinnur Sigurvinsson og Gunnar Malmquist Thorsson rakarar segja fallegt að sjá unga menn blómstra í starfinu. Vísir/Ísland í dag Rakaramenning á Íslandi hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum en sífellt fleiri karlmenn velja að leggja fagið fyrir sig. Í nýjasta þætti Ísland í dag ræðir Hödd Vilhjálmsdóttir við rakarana Guðfinn Sigurvinsson og Gunnar Malmquist Thorsson, en sá síðarnefndi segir meðal annars frá því hversu fallegt það sé að sjá unga menn blómstra eftir að hafa fundið sína hillu í lífinu.
Rakarastóllinn snýst ekki lengur bara um klippinguna sjálfa, heldur tilfinninguna og félagsskapinn sem henni fylgir. „Ég held að það hafi aldrei verið nauðsynlegra fyrir karlmenn en akkúrat núna að geta komið í klippingu, slappað af, annaðhvort bara sitjum við í þögninni eða við spjöllum og bara fá aðeins að stíga út úr deginum og losna við smá streitu,“ segir Guðfinnur Sigurvinsson, rakari á Slippnum og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Garðabæ. Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni: Gunnari Malmquist Thorssyni, rakara á stofunni Studio Laugar, finnst félagsskapurinn í stólnum ekki síður mikilvægur: „[Ég] er með mína fastakúnna og þessir fastakúnnar eru nú bara orðnir vinir mínir í dag, þannig að maður er nú bara í kringum vini sína alla daga sko, sem er náttúrulega algjör, algjör forréttindi sko,“ segir hann. Þó að viðskiptahlið reksturs stofunnar taki mikinn tíma segist Gunnar aldrei ætla að hætta að klippa og að það sé ástæðan fyrir því að hann hafi farið í þennan geira. Guðfinnur segir furðulegt að sjá vel klædda menn sem virðast ekki hugsa nægilega vel um klippinguna. Hann líkir því við „varalit á svíni ef hárið er ekki með í lúkkinu“. Hann telur menn oft ekki gefa sér tíma í klippinguna og njóta þeirrar upplifunar að setjast í rakarastólinn. Guðfinnur Sigurvinsson, rakari á Slippnum. Vísir/Ísland í dag Guðfinnur hefur ferðast víða til að heimsækja rakarastofur og sækja sér innblástur. Honum finnst skemmtilegt að fylgjast með umhverfinu og hvernig rakaraþjónustan er framkvæmd og sett fram út um allan heim með mismunandi hætti. Hann segir klippinguna vera fjárfestingu í sjálfum sér. „Þetta er ekkert dýrt, þetta er svona eins og helmingurinn af því að kaupa skyrtu og gera það einu sinni í mánuði er ekkert svakalegt, af því þú ert að gera þetta fyrir þig,“ segir hann. Guðfinnur segir ungu kynslóðina hafa opnað dyr í geiranum. Sífellt fleiri karlar komi inn í stéttina. Stundum hafi verið enginn eða mest tveir strákar í hársnyrtiiðn í Tækniskólanum á árum áður en í fyrra hafi helmingur nemenda í Hárakademíunni verið strákar. „Það er bara stutt í að þeir taki yfir. Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár,“ segir hann. Gunnar Malmquist Thorsson, rakari á stofunni Studio Laugar.Vísir/Ísland í dag Gunnar á Studio Laugum er einmitt með marga unga menn í vinnu, sá yngsti 17 ára. Hann segir frábært að leiðbeina strákunum og fallegt að sjá þá blómstra.
Ísland í dag Hár og förðun Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira