Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 1. júní 2026 21:00 Eiríkur Bergmann segir að ef málið verði fellt af þjóðinni í ágúst muni það koma sér mjög illa fyrir ríkisstjórnina. Vísir/Anton Brink Það verður mikið högg fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei við aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Niðurstaðan muni hafa mikil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið að sögn stjórnmálafræðings og þar verði Samfylkingin ekki undanskilin þrátt fyrir að hún hafi ekki beitt sér mikið í málinu.
Mikið hefur verið karpað um hvaða áhrif niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar muni hafa á ríkisstjórnarsamstarfið. Sumir telja að ríkisstjórninni verði ekki stætt segi þjóðin nei á meðan aðrir telja að útkoman muni engin áhrif hafa. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir ljóst að niðurstaðan muni hafa mikil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið enda setji ríkisstjórnin sjálfa sig undir í atkvæðagreiðslunni. „Höggið er ef þjóðin segir nei, það blasir algjörlega við. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þetta er ekki þannig að það sé eitthvað verið að athuga hvað þjóðinni finnst. Ríkisstjórnin vill ganga í Evrópusambandið að því gefnu að hún nái ásættanlegum samningi, það er hin pólitíska forysta sem er í málinu. Hún hefur beðið þjóðina að koma með sér í þá vegferð, veita henni umboð til þess. Og falli það þá kemur það sér mjög illa fyrir ríkisstjórnina. En samþykki þjóðin það, þá er það auðvitað sigur fyrir ríkisstjórnina.“ Málið sé keyrt áfram á vakt Samfylkingarinnar Hann segir að höggið verði ekki minna fyrir Samfylkinguna en Viðreisn þó að síðarnefndi flokkurinn keyri málið áfram. Vilji ríkisstjórnin að málið farið í gegn verði forsætisráðherra að beita sér af fullum þunga í málinu. „Sem forsætisráðherra hefur ekki gert enn. Ég myndi halda samt, höggið er alveg jafn mikið fyrir Samfylkinguna líka jafnvel þó hún beiti sér ekki fyllilega í málinu vegna þess að þetta er á þeirra vakt, þetta er þeirra mál. Ríkisstjórnin er að sækja um aðild að Evrópusambandinu.“ Flokkur fólksins hefur ekki verið fylgjandi aðild en sett afstöðu sína til hliðar í málinu. „Þannig ég sé ekki að Flokkur fólksins sé í neinum sérstökum vanda verði þetta samþykkt, það er að segja haldi þingmenn sig við þá línu sem þeir hafa verið að leggja.“
Evrópusambandið Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira