Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Smári Jökull Jónsson skrifar 20. maí 2026 12:17 Vilhjálmur er þingmaður Suðurkjördæmis og oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Hann segir það hafa verið kröfu frá samfélaginu að taka málefni hælisleitenda í Reykjanesbæ föstum tökum. Vísir/Vilhelm Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu.
Meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjanesbæ standa nú yfir en báðir flokkar voru með það á stefnuskrá sinni að breyta þyrfti hvernig staðið væri að mótttöku hælisleitenda. Í viðtali hjá RÚV í gær sagði Vilhjálmur Árnason þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokks að ekki yrði tekið á móti fleiri hælisleitendum í sveitarfélaginu komist flokkarnir til valda. „Það var bara skýr krafa frá samfélaginu í Reykjanesbæ að þessi mál væru tekin föstum tökum. Við höfum fundið það að þessi umræða og einstaka atvik sem hafa verið að koma upp raska öryggistilfinningu fólks,“ sagði Vilhjálmur í hádegisfréttum Bylgjunnar. Ekkert ákveðið varðandi öryggisteymi Árið 2023 setti Vinnumálastofnun af stað aðgerðaáætlun til að draga úr fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem dvelja í Reykjanesbæ. Vilhjálmur segir gríðarlegan árangur hafa náðst. „Fjölgunin hérna er engin, heldur dregur verulega úr fjöldanum og gerir það hratt ennþá. Það er upplifun fólks að það þurfi að klára verkefnið til enda. Hér hefur verið stanslaus fækkun og eru alltaf færri og færri eftir sem eru að bíða úrlausnar sinna mála.“ Vissulega sé greinarmunur á aðilum sem hafa sótt um alþjóðlega vernd og bíða úrlausnar sinna mála og aðilum sem komið sé með kennitölu og sveitarfélaginu beri að þjónusta. „Við erum náttúrulega að tala um fólk sem er hér að mæla göturnar og er ekki í neinni formlegri virkni, um það snýst málið. Við erum með fullt af innflytjendum og góðu, öflugu fólki hérna og það er ekkert samfélag betra en Reykjanesbær í að aðlaga og taka á móti.“ Í aðdraganda kosninga ræddi Vilhjálmur möguleikann á því að koma tímabundið á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu sem styðja myndi starfsfólk á stöðum þar sem hegðun er ekki sem skyldi, til dæmis í sundlaugum og strætó. „Það hefur ekkert verið ákveðið um það ennþá, en ef það er það sem þarf til að klára þetta verkefni og tryggja fullkomna öryggistilfinningu þá munum við skoða það já.“ „Munum setja okkur algjörlega á móti því að þetta verði inni í íbúabyggð“ Áætlað er að fyrirhuguð brottfararstöð fyrir útlendinga verði staðsett á Suðurnesjum en frumvarp dómsmálaráðherra þess efnis bíður afgreiðslu Alþingis. Vilhjálmur segir það nauðsynlegt úrræði sem þurfi að vera staðsett á þessu svæði. „Við munum bara setja okkur algjörlega á móti því að þetta verði inni í íbúabyggð. Við munum ekki setja okkur á móti því að það sé á Suðurnesjum, svo framarlega sem það sé lokað brottfararúrræði.“ Vilhjálmur segir góðan gang í meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Hann vildi ekki segja til um hvort hann yrði bæjarstjóri en ef hann fari í aðra fulla vinnu muni hann hætta á þingi. Er það þín tilfinning að þið munið ná saman? „Já, ég hef fulla trú á því og bjartsýnn á því að við náum að klára þetta núna næstu daga.“
Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Reykjanesbær Hælisleitendur Brottfararstöð fyrir útlendinga Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst. 14. apríl 2026 16:51 Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira
Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst. 14. apríl 2026 16:51