Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Arnar Skúli Atlason skrifar 18. maí 2026 21:08 Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fjórða sinn í sögunni eftir sigur í Síkinu í kvöld gegn heimamönnum í liði Tindastóls. Lokatölur 101-109. Grindavík hafði betur í úrslitaeinvíginu 3-1. Fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2013. Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Oft hefur verið sagt að Grindvíkingar búi yfir mikilli þrautseigju. Það reyndi á það í kvöld þegar að fyrir leik varð ljóst að tveir af lykilmönnum liðsins, þeir DeAndre Kane og Ólafur Ólafsson, yrðu ekki með vegna meiðsla. Með Jeremy Pargo í fararbroddi sýndu Grindvíkingar allar sínu bestu hliðar og unnu verðskuldaðan sigur á einum erfiðasta, ef ekki erfiðasta útivelli landsins. Grindvíkingar Íslands- og deildarmeistarar karla í körfubolta tímabilið 2025/26. Nánari umfjöllun um leikinn auk viðtala úr Síkinu við nýkrýnda Íslandsmeistarana verður hægt að finna her á Vísi seinna í kvöld. Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík