„Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Freyja Þórisdóttir skrifar 15. maí 2026 19:25 Þorsteinn R. Hermannsson sinnti áður starfi samgöngustjóra á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Vísir/Reykjavíkurborg Endurskoðun á Borgarlínu myndi hægja á verkefninu, að mati framkvæmdastjóra Betri samgangna, líkt og hugmyndir nokkurra oddvita í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum gera ráð fyrir. Kostnaður við umferðartafir sé töluverður og því skipti máli að vinna hratt og vel í þessum málum.
Borgarlínan hefur nokkuð verið rædd í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna en í kappræðum oddvitanna á Sýn og Vísi kom skýrt fram að þeir líta framtíð hennar ólíkum augum. Miðflokkurinn hefur sett sig gegn Borgarlínunni og Sjálfstæðisflokkurinn vill endurskoða hana. Þá vilja Framsókn og Flokkur fólksins að sama skapi endurskoða hluta samgöngusáttmálans. Sagði um tímamótaaðgerð að ræða Upphaf Borgarlínunnar má rekja aftur til ársins 2015, þegar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ákváðu að fara í hágæða almenningssamgöngukerfi sem fékk heitið Borgarlína. Árið 2019 var svo undirritaður samgöngusáttmáli á milli ríkis og sex sveitarfélaga sem gerði ráð fyrir Borgarlínunni. Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi samgönguráðherra, sagði þá um tímamótaverkefni að ræða. Skrifað var svo undir uppfærða samgönguáætlun aftur árið 2024 og eru framkvæmdir við Borgarlínuna nú í fullum gangi. „Framkvæmdir hófust í fyrra við fyllingar við Fossvogsbrú og framkvæmdir við brúna sjálfa eru hafnar. Þá eru komnar af stað framkvæmdir víðar. Í raun og veru er þá búið að bjóða út framkvæmdir við Hlemm og á Laugavegi og svona útboð líka á Nauthólsvegi, segir Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar nú í kvöld, föstudaginn 15. maí. Þá minnist hann einnig á það að kostnaður við umferðartafir og ferðatíma sé töluverður og því meira sem hægt væri að gera og því hraðar, því betra. „Að mæta því hvernig þetta fólk á að komast á milli staða innan höfuðborgarsvæðisins. Það er náttúrulega kostnaður við umferðartafir og ferðatíma er náttúrulega töluverður og því meira sem við getum gert og því hraðar sem við getum gert, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“. Gæti þurft að hægja á verkefninu Kostnaður við verkefnið fellur að mestu leyti á ríkið, en það á, samkvæmt samkomulagi, að greiða hátt í 90 prósent hans. Aðspurður um áhrifin af því að fara í heildarendurskoðun á verkefninu segir Þorsteinn það koma til með að hægja á því. „Við erum að vinna eftir þessu samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna frá 2019, sem var uppfært 2024, fyrir tveimur árum síðan. og það er í sjálfu sér alveg hægt að uppfæra það og hugsa málin upp á nýtt,“ segir hann jafnframt og bætir við að það gæti komið upp sú staða að endurhugsa þurfi ferlið. „Það í raun og veru setur okkur samt kannski í þá stöðu að við þurfum þá að hægja á framkvæmdum og öðru á meðan og hugsa hvernig, hugsa þetta upp á nýtt að einhverju leyti. Fyrst að nota Borgarlínu og vera tilbúin 2031, Sæbrautarstokkur og Reykjanesbraut, Bústaðavegur líka á sama tíma, þannig að það er mjög margt undir nú næstu fjögur, fimm árin,“ segir hann að lokum.
Borgarlína Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samgöngumál Samgönguáætlun Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira