Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2026 16:43 Harvey Weinstein í dómsal í New York í gær, 14. maí. AP/Spencer Platt Kviðdómendur í nauðgunarmáli gegn Harvey Weinstein, í máli þar sem hann hefur verið ákærður fyrir að nauðga Jessicu Mann árið 2013, segjast ekki geta náð saman um niðurstöðu í málinu. Því gæti þurft að rétta aftur yfir Weinstein en það yrði í fjórða sinn í sama málinu.
Weinstein hafði áður verið sakfelldur fyrir að nauðga Mann en þeirri sakfellingu var snúið af áfrýjunardómstól árið 2020. Önnur réttarhöld fóru fram í fyrra og komust kviðdómendur ekki að niðurstöðu. Þau réttarhöld sem standa nú yfir eru þau þriðju um það hvort Weinstein hafi nauðgað Mann á hótelherbergi í New York árið 2013. Sjá einnig: Fékk óstjórnlegt grátkast í réttarsal eftir að verjandi Weinstein þjarmaði að henni Dómarinn í málinu, sem er flutt í New York, sagði lögmönnum Weinsteins og saksóknurum í dag að kviðdómendur ættu í basli. Hann sagði þeim að halda áfram að ræða málið en ef þeim tækist ekki að ná saman um niðurstöðu sagði hann að rétta þyrfti aftur í málinu og þá fyrir framan aðra kviðdómendur. Þessi þriðju réttarhöld stóðu yfir í tæpar þrjár vikur. Mann bar vitni yfir fimm daga tímabil en Weinstein gerði það ekki. Weinstein, sem er 74 ára gamall, var í dómsal í gær en þá fann hann verki fyrir brjósti. Hann hefur átt við heilbrigðisvanda að glíma um nokkurra ára skeið. Hann greindist til að mynda með krabbamein árið 2024. Sjá einnig: Weinstein greindur með krabbamein Mann segist hafa viljandi haft mök við Weinstein á árum áður en hann hafi nauðgað henni á áðurnefndu hótelherbergi í mars 2013. Weinstein hefur neitað því að hafa nauðgað Mann, eins og öllum öðrum málunum gegn honum. Verjendur hans hafa meðal annars vísað til þess að Mann hélt áfram að hitta Weinstein eftir hina meintu nauðgun. Mann segir hins vegar að viðhorf hennar gagnvart mökunum hafi breyst eftir árið 2017, þegar ásakanirnar gegn Weinstein byrjuðu að líta dagsins ljós og hrintu #MeToo hreyfingunni af stað. Weinstein hefur áður verið sakfelldur fyrir kynferðisbrot og þar á meðal nauðgun í bæði New York og Kaliforníu.
Bandaríkin Mál Harvey Weinstein MeToo Hollywood Tengdar fréttir Weinstein ákærður fyrir fleiri kynferðisbrot Saksóknarar í máli Harveys Weinstein, bandaríska kvikmyndaframleiðandans, hafa lagt fram ákæru á hendur honum fyrir enn fleiri kynferðisbrot. Réttað verður aftur yfir Weinstein í New York eftir að dómstóll ógilti dóm sem hann hlaut í vor. 12. september 2024 18:16 Weinstein fluttur í flýti í bráðaaðgerð Harvey Weinstein, fyrrverandi kvikmyndaframleiðandi, var fluttur í flýti á spítala í gær í New York þar sem hann gekkst undir bráðaaðgerð á hjarta. Lögmenn Weinstein tilkynntu þetta í samtali við fréttastofu BBC. 9. september 2024 21:09 Vilja endurupptöku í máli Weinstein Saksóknarar kröfðust endurupptöku yfir Harvey Weinstein í yfirheyrslu í Manhattan-borg í dag eftir að áfrýjunardómstóll sneri við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. 1. maí 2024 19:35 Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Leikkonan Ashley Judd, sem var meðal þeirra fyrstu sem stigu fram og greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, segir það áfall að dóminum yfir honum hafi verið snúið. 26. apríl 2024 06:56 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Weinstein ákærður fyrir fleiri kynferðisbrot Saksóknarar í máli Harveys Weinstein, bandaríska kvikmyndaframleiðandans, hafa lagt fram ákæru á hendur honum fyrir enn fleiri kynferðisbrot. Réttað verður aftur yfir Weinstein í New York eftir að dómstóll ógilti dóm sem hann hlaut í vor. 12. september 2024 18:16
Weinstein fluttur í flýti í bráðaaðgerð Harvey Weinstein, fyrrverandi kvikmyndaframleiðandi, var fluttur í flýti á spítala í gær í New York þar sem hann gekkst undir bráðaaðgerð á hjarta. Lögmenn Weinstein tilkynntu þetta í samtali við fréttastofu BBC. 9. september 2024 21:09
Vilja endurupptöku í máli Weinstein Saksóknarar kröfðust endurupptöku yfir Harvey Weinstein í yfirheyrslu í Manhattan-borg í dag eftir að áfrýjunardómstóll sneri við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. 1. maí 2024 19:35
Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Leikkonan Ashley Judd, sem var meðal þeirra fyrstu sem stigu fram og greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, segir það áfall að dóminum yfir honum hafi verið snúið. 26. apríl 2024 06:56