Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar 15. maí 2026 15:01 Nýlega birti Seðlabanki Íslands rannsóknarritgerð þeirra Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra og Bjarna G. Einarssonar: „What sets trend? The evolution and drives of Icelandic trend inflation“ „Trend inflation“ má kalla kjarnaverðbólgu eða peningatengda verðbólgu. Hún er viðvarandi, óafturkræf og svarar til rýrnunar innra virðis greiðslumyntar. Það sem vantar uppá til að mæta vísitölu neysluverðs eru þá verðbreytingar sem stafa frá atvikum ótengdum peningum sem hafa áhrif á framboð eða eftirspurn einstakra vara eða vöruflokka. Þennan þátt getum við kallað atvikatengda verðbólgu. Nærtækt dæmi um slíkan verðbólguþátt er hækkun olíuverðs vegna Íran stríðsins. Hækkun vísitölu neysluverðs, sem í daglegu tali kallast verðbólga stafar þá frá tveimur þáttum, annars vegar kjarnaverðbólgu og hins vegar atvikatengdri verðbólgu. Með tólum hagfræðinnar komust þeir Þórarinn og Bjarni að þeirri niðurstöðu að kjarnaverðbólgan, eða sá hluti verðhækkana sem á rætur til breytinga á innra virði greiðslumyntarinnar hafi hækkað verulega sem hlutfall af hækkun vísitölu neysluverðs á undanförnum árum. Að kjarnaverðbólgan sé orðin samofnari heildarbreytingum verðlagsins. Og samhliða að verðbreytingar sem stafa frá atvikum eða hnykkjum ótengdum peningum, (ótengdum breytingum á innra virði peninga) fari minnkandi sem hlutfall af heildarbreytingum verðlagsins (vísitölu neysluverðs). Þetta er sem sagt niðurstaðan þegar viðurkennt reiknilíkan hefur mallað á íslenskum verðlagsgögnum. Túlkun Þórarins og Bjarna á niðurstöðunum er að mati undirritaðs vægast sagt stórmerkileg og úr öllu samhengi við raunveruleikann. Þeir segja að þessi þróun, þ.e. að vaxandi hlutfall verðbreytinganna stafi frá kjarnaverðbólgu eigi sér skýringar í bættri peningastjórn og vaxandi óþoli peningastjórnenda fyrir frávikum verðbólgu (vísitölu neysluverðs) frá kjarnaverðbólgunni. Það verður því miður að segjast að þessi túlkun opinberar takmarkaða þekkingu Þórarins og Bjarna á eðli máls sem um er fjallað. Niðurstaðan, sú að kjarnaverðbólgan sé viðvarandi yfir verðbólgumarkmiði og sé vaxandi hlutfall vísitölu neysluverðs ætti ein og sér að vera áfall fyrir Seðlabankann og stjórnendur hans. Það að Þórarinn klappi sjáfum sér á bakið fyrir þessa þróun sýnir svart á hvítu litla tilfinningu hans fyrir því meginhlutverki Seðlabankans að viðhalda verðstöðugleika. Með tólum sínum getur Seðlabankinn eingöngu haft áhrif á kjarnaverðbólguna, hinn peningatengda þátt verðbreytinganna. Tól Seðlabankans ráða ekki við hinn atvikatengda þátt verðbólgunnar, svo sem verðhækkanir á olíu vegna stríðs í Miðausturlöndum. Þegar það gerist að peningatengda verðbólgan fer úr böndum og verður stærra hlutfall vísitölu neysluverðs á tímum þegar við blasir að atvikatengdar verðhækkanir hafa verið með mesta móti allan þennan áratug þarf Seðlabankinn mikið frekar að fara í naflaskoðun en að klappa sér á bakið… svo ekki sé meira sagt. Niðurstaða rannsóknarinnar bendir eindregið til þess að Seðlabankanum hafi tekist að breyta atvikatengdum verðhækkunum í kjarnaverðbólgu og þannig unnið gegn markmiðum um verðstöðugleika. Seðlabanki Íslands stendur einn með þetta hlutskipti. Aðrir seðlabankar frjálsra hagkerfa hafa náð mun betri árangri í temprun kjarnaverðbólgunnar og þar með náð mun betri árangri við varðveislu verðstöðugleikans. Ástæðan er að mikill munur er á því hvernig íslenski seðlabankinn nálgast verkefnið samanborið við aðra seðlabanka frjálsra hagkerfa. Aðrir seðlabankar frjálsra hagkerfa hækka stýrivexti af varúð og að teknu tilliti til kjarnaverðbólgunnar. Atvikahlutanum er þar með leyft að falla saman þegar áhrif atvikanna dvína. Kjarnaverðbólgan helst þá lág, sem helst í hendur við verðstöðugleika. Sá íslenski keyrir hins vegar stýrivexti hratt upp fyrir vísitölu neysluverðs, helst 3 til 4% upp fyrir, alveg óháð því hversu stór hluti hækkunar vísitölunnar stafar frá atvikatengdri verðbólgu. Eins og verið hefur þennan áratug að hækkun vísitölu neysluverðs á yfirleitt rætur að stórum hluta í atvikatengdri verðbólgu jafngildir uppkeyrsla vaxta blint upp fyrir vísitölu neysluverðs í raun ofreisingu vaxta með afleiddum, tímabundnum, ósjálfbærum gengisstyrk krónunnar. Afleiðingin er ósjálfbær kaupmáttur krónunnar samfara aðhertu raunhagkerfi með viðvarandi verðbólguþrýstingi í miklu lengri tíma en tilefni er til. Þannig hefur Seðlabanki Íslands á síðustu árum breytt atvikatengdum verðhækkunum sem í eðli sínu eru tímabundnar í viðvarandi kjarnaverðbólgu. Rannsókn þeirra Þórarins og Bjarna staðfestir fúskið. Það ærði óstöðugan að hækka stýrivexti frekar við þessar aðstæður. Leiðin út úr mistakafarvegi Seðlabankans er að viðurkenna mistökin og viðurkenna að undir ofreistum stýrivöxtunum og afleiddu ofreistu gengi krónunnar er verðbólgugröftur sem hleypa þarf út með lækkun stýrivaxta í átt til Evrópuvaxta. Er þá von að jafnvægi og hagvöxtur komist aftur á með viðspyrnu raunhagkerfisins á grundvelli þess eðlilega gengis krónunnar sem ræðst af þrótti þess frekar en þvinguðum vaxtamun við útlönd. Höfundur er vélaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seðlabankinn Efnahagsmál Verðlag Örn Karlsson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar