Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Eiður Þór Árnason skrifar 15. maí 2026 00:15 Dómur Landsréttar var kveðinn upp á miðvikudag. Vísir/vilhelm Landsréttur taldi ekki sannað að einstaklingur sem dæmdur var í héraði fyrir peningaþvætti í tengslum við mannránið á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni hafi haft vitneskju um að reikningsupplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti.
Þá hafi hann ekki verið bær til þess að veita samþykki sitt til þess á verknaðarstundu. Í ljósi þessa var hann sýknaður af ákæru um peningaþvætti í Landsrétti. Landsréttur staðfesti sakfellingu Stefáns Blackburn, Lúkasar Geirs Ingvarssonar og Matthíasar Björns Erlingssonar fyrir frelsissviptingu, rán og að hafa orðið Hjörleifi að bana. Á sama tíma stytti Landsréttur dóm Lúkasar og Stefáns um eitt ár, úr sautján árum í sextán. Fangelsisdómur Mattíasar var styttur úr fjórtán árum í tólf. Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða á miðvikudag. Látið foreldra vita Sá sem var ákærður fyrir peningaþvætti kveðst hafa verið þvingaður til að gefa upp númer á bankareikningi sínum og óttast um líf sitt og fjölskyldu vegna ítrekaðra hótana Matthíasar og Lúkasar. Hann hafi sent upplýsingarnar til Matthíasar og sofnað eftir það. Þegar hann vaknaði hafi Matthías verið búinn að hringja sex sinnum í hann auk þess sem hann hafi séð að búið var að leggja inn á hann þrjár milljónir króna. Hann hafi orðið mjög hræddur og lagt fjárhæðina inn á reikning Matthíasar að hans beiðni. Hinn ákærði, sem er ekki nafngreindur í dómi Landsréttar, hafi séð að greiðslan hafi komið frá reikningi Hjörleifs sem hann kvaðst ekki þekkja. Hann hafi síðan látið foreldra sína vita og haft samband við lögreglu vegna málsins. „Kvaðst ákærði hafa metið það svo að hann ætti ekki annarra úrkosta, einkum vegna þess hve hræddur hann var. Neitaði ákærði því að hafa samþykkt að fá þessa fjármuni inn á reikninginn hjá sér. Hann hefði veitt upplýsingarnar og millifærslan komið á reikninginn hans á meðan hann svaf. Þegar hann hefði orðið þess var hefði óðagot komið yfir hann og hann hringt í meðákærða Matthías Björn sem hefði sagt honum að leggja peningana inn á sig. Neitaði ákærði því að hafa vitað að um illa fengið fé væri að ræða þegar hann gaf bankaupplýsingarnar. Hann kvaðst ekki hafa spurt að því hvaðan peningarnir kæmu heldur aðeins tekið við skipunum sem honum hefðu verið gefnar,“ segir í dómi Landsréttar. Eigi stoð í áliti sálfræðinga Landsréttur taldi framburð ákærða trúverðugan, að hann hafi óttast meðákærðu og því gefið þeim bankaupplýsingarnar í óðagoti án þess að átta sig á þýðingu þeirra. Framburðurinn eigi einnig „stoð í framlögðum sérfræðigögnum um andlegt atgervi ákærða og getu hans til að bregðast við krefjandi aðstæðum. Skortir því á að ákæruvaldinu hafi tekist að sanna, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að ákærði hafi haft vitneskju um að upplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti og að hann hafi verið bær til að veita samþykki sitt til þess á verknaðarstundu,“ að því er fram kemur í dómi Landsréttar. Töldu sannað að nítján ára kona hafi átt hlutdeild í frelsissviptingu Landsréttur taldi að þáttur ungrar konu í málinu uppfyllti skilyrði um hlutdeild í frelsissviptingu Hjörleifs og dæmdi hana í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hún hafði áður verið sýknuð í Héraðsdómi Suðurlands. Hún var nítján ára þegar brotið var framið. Konan gekkst við því bæði fyrir héraðsdómi og Landsrétti að hafa, að beiðni Lúkasar Geirs, sett sig í samband við Hjörleif í því skyni að fá hann til að yfirgefa heimili sitt og fara í bifreið vitandi að til stæði að neyða hann með ólögmætum hætti til að láta af hendi fjármuni. Landsréttur taldi ekki sannað að ásetningur konunnar hefði staðið til þess að Hjörleifur yrði beittur líkamlegu ofbeldi til að ná af honum fé. Var hún því sýknuð af hlutdeild í ráni samkvæmt ákæru.
Manndráp í Gufunesi Dómsmál Reykjavík Ölfus Tengdar fréttir Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða í síðdegis. Einn sem hlaut dóm í héraði var sýknaður og dómar þriggja sem dæmdir voru fyrir manndráp voru mildaðir um eitt til tvö ár. Ung kona sem var sýknuð í héraði var aftur á móti sakfelld fyrir hlutdeild í frelsisviptingu og dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. 13. maí 2026 15:47 Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða hófst í Landsrétti í morgun. Þar freista þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson þess að fá sautján ára fangelsisdómum fyrir manndráp hnekkt og Matthías Björn Erlingsson fjórtán ára dómi. Ríkissaksóknari lætur reyna á sýknu ungrar konu sem var ákærð fyrir að lokka fórnarlambið út af heimili sínu. Þá er hlutur ungs karlmanns sem var sakfelldur fyrir peningaþvætti undir en ákvörðun refsingar hans var frestað í héraði. 15. apríl 2026 10:10 Mest lesið Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Innlent Vilja banna rússneska túrista Erlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Sjá meira
Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða í síðdegis. Einn sem hlaut dóm í héraði var sýknaður og dómar þriggja sem dæmdir voru fyrir manndráp voru mildaðir um eitt til tvö ár. Ung kona sem var sýknuð í héraði var aftur á móti sakfelld fyrir hlutdeild í frelsisviptingu og dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. 13. maí 2026 15:47
Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða hófst í Landsrétti í morgun. Þar freista þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson þess að fá sautján ára fangelsisdómum fyrir manndráp hnekkt og Matthías Björn Erlingsson fjórtán ára dómi. Ríkissaksóknari lætur reyna á sýknu ungrar konu sem var ákærð fyrir að lokka fórnarlambið út af heimili sínu. Þá er hlutur ungs karlmanns sem var sakfelldur fyrir peningaþvætti undir en ákvörðun refsingar hans var frestað í héraði. 15. apríl 2026 10:10