Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Valur Páll Eiríksson skrifar 14. maí 2026 11:02 Stuðningsmaður Grindavík fór yfir strikið í fyrsta leik úrslitaeinvígisins og fær ekki að mæta þegar Grindvíkingar geta tryggt sér titilinn annað kvöld. vísir Körfuknattleiksdeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem greint var frá því að stuðningsmaður liðsins hefði verið úrskurðaður í bann.
Grindavík og Tindastóll eigast við úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta þessi dægrin. Grindavík leiðir einvígið 2-0 eftir sigur á Sauðárkróki í fyrrakvöld. Í fyrsta leik liðanna í Grindavík höfðu heimamenn einnig betur en atvik í stúkunni skilur eftir svartan blett. Stuðningsmaður Grindavíkur kastaði þá bjórdós í átt að stuðningsfólki Tindastóls og hefur viðkomandi verið úrskurðaður í bann frá næsta leik vegna atviksins. Körfuknattleiksdeild Grindavíkur biður stuðningsfólk Tindastóls afsökunar á atvikinu í yfirlýsingu. Liðin eigast við þriðja sinni annað kvöld í Grindavík þar sem Grindvíkingar geta orðið Íslandsmeistarar. Mikil spenna er fyrir leiknum og uppselt varð á þremur mínútum eftir að miðar fóru í sölu í gær. Vera má að Grindavík verði án DeAndre Kane, en kæra á hendur honum liggur á borði aganefndar KKÍ, vegna hegðunar hans eftir leik á Króknum í vikunni. Yfirlýsing frá Körfuknattleiksdeild Grindavíkur Á fyrsta leik Grindavíkur og Tindastóls kom upp alvarlegt atvik þar sem áhorfandi kastaði dós í átt að stuðningsfólki Tindastóls. Körfuknattleiksdeild Grindavíkur fordæmir slíka hegðun alfarið. Hún á ekkert erindi í íþróttahús, getur skapað hættu fyrir aðra gesti og er í algjörri andstöðu við þau gildi sem við viljum standa fyrir. Við biðjum stuðningsfólk Tindastóls einlæglega afsökunar á þessu atviki. Gestir okkar eiga alltaf að geta mætt í HS Orku höllina, stutt sitt lið og notið leiksins í öruggu og virðingarfullu umhverfi. Við höfum brugðist við málinu og viðkomandi áhorfandi hefur verið settur í bann á næsta heimaleik Grindavíkur. Við viljum að HS Orku höllin sé kraftmikill, hávær og skemmtilegur heimavöllur — en alltaf á grundvelli virðingar, öryggis og góðrar framkomu. Við biðjum alla stuðningsmenn að standa með okkur í því. Áfram Grindavík
Bónus-deild karla UMF Grindavík Tindastóll Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira