Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Samúel Karl Ólason skrifar 13. maí 2026 15:58 Alex Murdaugh í dómsal í september 2023. AP/James Pollard Hæstiréttur Suður-Karólínu hefur fellt úr gildi dóm gegn Alex Murdaugh, sem var árið 2023 dæmdur fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Líklega verður réttað yfir honum aftur vegna morðanna en Murdaugh, sem er 57 ára gamall, mun þó líklega ekki sleppa úr fangelsi, þar sem hann hefur verið dæmdur fyrir önnur brot eins og umfangsmikinn fjárdrátt.
Murdaugh játaði fjárdráttinn en hefur ávallt haldið því fram að hann hafi ekki framið morðin. Úrskurðurinn felur ekki sjálfkrafa í sér að önnur réttarhöld fari fram en saksóknarar hafa þegar lýst því yfir að þeir muni fara fram á það. Sjá einnig: Murdaugh dæmdur í fangelsi í þriðja sinn Morðmál Murdaugh hefur vakið mikla athygli á heimsvísu á undanförnum árum. Eiginkona og sonur Alex Murdaugh, Maggie Murdaugh, 52 ára, og Paul, 22 ára, voru skotin til bana þann 7. júní 2021, nærri hundabúrum á stórri landareign fjölskyldunnar í Suður-Kaliforníu. Alex Murdaugh hafði samband við Neyðarlínuna umrætt kvöld og sagðist þá hafa komið að þeim látnum eftir um klukkustundar heimsókn til móður sinnar sem var með elliglöp. Rannsókn leiddi síðar í ljós að Maggie hafði verið skotin fjórum eða fimm sinnum með riffli en Paul var skotinn tvisvar með haglabyssu og með misstórum höglum. Enginn var handtekinn vegna málsins í rúmt ár en Murdaugh var að lokum ákærður fyrir morðin í júlí 2022. Morðvopnin fundust aldrei en tuttugu mánuðum eftir morðin kom í ljós að Murdaugh hafði logið um hvar hann hefði verið. Myndband sem fannst á síma sonar hans sýndi að hann var á staðnum þar sem morðin voru framin, fimm mínútum áður en talið er að þau hafi verið framin. Málflutningurinn gegn Murdaugh byggði að miklu leyti á því, þar sem lítið sem ekkert var um önnur sönnunargögn. Málið hefur lengi verið mikið milli tannanna á fólki, bækur hafa verið skrifaðar og fjallað hefur verið um það í fjölda hlaðvarpa. Þá hafa einnig verið gerðar heimildarmyndir um það en ein var sýnd á Netflix. Myndin snýr einnig að atviki frá 2019 þegar Paul Murdaugh varð valdur að bátaslysi þar sem ung kona, farþegi í bátnum, dó. Kenna dómritaranum alfarið um Í úrskurði hæstaréttar segir að dómritarinn í málinu gegn Murdaugh hafi haft óeðlilega mikil áhrif á málið með því að segja kviðdómendum að hann væri ótrúverðugur. Þá segja dómarar hæstaréttar að dómarinn í morðmálinu hafi gengið of langt í því að leyfa sönnunargögnum tengdum fjárdrætti hans að spila of stóra rullu í morðmálinu. Áhugasamir geta fundið úrskurðinn hér. Dómritarinn heitir Becky Hill en hún hafði það hlutverk að halda utan um sönnunargögn í málinu og kviðdómendur. Hún er sögð hafa haft of mikil áhrif á kviðdómendur, meðal annars til að reyna að auka sölu bókar sem hún skrifaði um morðmálið. Bókin heitir „Behind the doors of justice: The Murdaugh murders“ eða „Bakvið dyr réttlætisins: Murdaugh morðin“. Bókin var tekin úr sölu eftir að Hill var sökuð um ritstuld. Hún var þar að auki sakfelld fyrir að ljúga að öðrum dómara um hvað hún sagði við kviðdómendur á sínum tíma. Í úrskurði sínum hrósa dómarar hæstaréttar bæði saksóknurunum og verjendum Murdaugh og varpa allri sökinni á því að dómurinn hafi verið felldur úr gildi á herðar Hill.
Bandaríkin Erlend sakamál Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira