„Einhver barnaskapur held ég“ Arnar Skúli Atlason skrifar 12. maí 2026 22:58 Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga. Vísir/Anton Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var mjög ánægður að ná að klára leik tvö í kvöld á móti Tindastóli í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. „
Þetta er mjög sætt. Við komum hingað til að taka leikinn. Það voru ákveðinn atriði sem voru ekki að detta með okkur til að byrja með. En við gerum vel á hálfum velli varnarlega og það er það sem gefur okkur þennan sigur. Ég er bara mjög sáttur eins og ég talaði um fyrir leik þá er mjög erfitt að koma hérna. Bara geggjað að vera hérna og ég hef aldrei verið hérna í svona í alvöru úrslitakeppnisstemningu. Þetta er þvílík upplifun og geggjað og talandi um að vinna er alveg. Ég er mjög sáttur.“ Grindavík komu fljúgandi út í seinni hálfleikinn og náðu upp góðri forystu „Við hittum mjög illa í fyrri hálfleik en við bjuggum okkur til fullt af skotum. Þeir klukka teiginn mikið í hjálparvörn og við vorum ekki alveg í takt fyrir utan línu en svo bara kom það. Pargo var 0 af 3 í hálfleik og setti svo 3 í byrjun seinni svo hittir Unnsteinn og Raggi og Óli setur einn og þá fór okkur að líða betur sóknarlega. Mér fannst aðeins draga af okkur í restina og við vorum ekki nógu skynsamir down the stretch en okkur tókst að koma þessu yfir línuna og það er það sem skiptir máli.“ Unnsteinn Rúnar kom inn og skilaði lykil stigum á þeim mínútum sem hann spilaði í kvöld. „Bara geggjað. Hann er búinn að standa sig vel í þessum mómentum sem hann hefur fengið að koma inn á. Hann er að stíga stórt skref í að vera lykilleikmaður í þessu liði. Spilaði vel í leik 1 og leik 5 á móti Val. Það er geggjað því Daniel er dottinn út.“ Það var hiti eftir leikinn þar sem Deandre Kane og Dagur Þór formaður Tindastóls lentu í orðaskiptum eftir að Deandre Kane sendi stuðningsmönnum Tindastóls fuglinn svokallaða. „Ég veit það ekki. Einhver barnaskapur held ég. Ég veit svo sem ekki hvað gerðist þarna. Ég bara varði minn mann eins og alltaf. Þannig ég veit ekkert hvað gerðist. “ Jóhanni fannst Dagur formaður bregðast of hart við þessu hjá Kane. „Barnaskapur í formanni Tindastóls. Hann er bara að fagna sigri hérna og þó hann snúi sér í átt að stuðningsmönnum Tindastóls það er bara partur af programminu“ Arnar Guðjónsson var heitur og vildi meina að Deandre Kane og Jeremy Pargo fengu að gera meira varnarlega en aðrir og væri minna dæmt á þá. „Bara eins og ég sagði við þig fyrir leik. Ég meina að fólk verður að hafa sína skoðanir á þessu og allt það. Stólarnir eins og aðrir eiga erfitt með að hemja hann. Þetta er ein leið til að komast inn í hausinn á honum og reyna að snúa þriðja liðinu. Það er fínt að Tindastól er að einbeita sér að því sem þeir stjórna ekki. Það er bara geggjað.“ Grindavík getur tryggt sér sigur í einvíginu á föstudaginn og hefur Jóhann aldrei verið í þessari stöðu áður sem þjálfari. „Var ljóst alveg í byrjun að það þurfti að vinna þrjá leiki. Við erum komnir með tvo og það er oft erfitt að loka svona aðstæðum. Ég hef ekki verið í svona aðstæðum áður og ég ætla ekki að ræða þetta við Lalla bróðir það er klárt. Það er leikur á föstudaginn og fullt hús heima í Grindavík og við þurfum núna bara að endurheimta og við mætum á föstudaginn og reynum að vinna.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Tindastóll Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira