Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Arnar Skúli Atlason skrifar 12. maí 2026 21:10 vísir/guðmundur Grindavík vann 86-83 útisigur á Tindastóli í leik tvö í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Grindavík leiðir einvígið því 2-0 og getur tryggt fyrsta titil sinn frá 2013 á föstudaginn kemur. Tindastóll byrjaði betur í kvöld og komst yfir í upphafi. Taiwo Badmus og Adomas Drungilas voru að komast á hringinn og skora fyrir Tindastól. Ólafur Ólafsson og Deandre Kane voru heitir hinu meginn og héldu Grindavík inn í þessu. staðan eftir 1 leikhluta 27-22 Tindastól í vil. Grindavík byrjaði miklu betur í öðrum leikhluta og skoruðu fyrstu 10 stig leikhlutans og Tindastóll virkuðu heillum horfnir. Þeir vöknuðu samt um miðjan fjórðunginn og komust aftur yfir en mikil barátta var í 2 leik hlutanum og mikið um tapaða bolta og lélegar ákvörðunartökur. Tindastóll leiddi hins vegar í hálfleik 42-40. Grindavík voru sjóðheitir þegar þeir komu úr hálfleiknum. Þeir keyrðu yfir Tindastól í upphafi leikhlutans og allt í einu leiddu þeir 45-56. Jeremy Pargo var eins og örbylgjuofn og setti þrjár þriggja stiga körfur í þremur sóknum. Fyrir þetta hafði hann ekki sett eina þriggja stiga körfu í einvíginu. Tindastóll kom hins vegar til baka og náði að minnka muninn og voru komnir með þetta í 2 stig áður en leik hlutanum lauk en staðan fyrir seinasta fjórðunginn var 59-61. Bæði lið voru öflug í upphafi fjórða leikhluta og liðin voru að skiptast á körfum. Dedrick Basile var að gera meira fyrir Tindastól og Jordan Semple og Deandre Kane voru sleipir fyrir Grindavík. Gestirnir rykktu sig frá Tindastól þegar um og Jordan Semple kemur þessu upp í 8 stiga mun þegar þrjár mínútur voru eftir á leiknum. Dedrick Basile tók þá til sinna ráða og jafnaði leikinn upp á sitt einsdæmi. En það var Unnsteinn Rúnar sem stal senunni í lokin. Hann setti risastóran þrist og kom Grindavík yfir aftur. Leikurinn réðst síðan á vítalínunni og voru það gestirnir í Grindavík og stóru vítin sem Unnsteinn Rúnar og Jeremy Pargo settu sem sigldu þessu heim fyrir Grindavík en loka tölur voru 83-86. Atvik leiksins Jeremy Pargo var maður stóra augnabliksins þegar hann setti 2 víti ofaní og breytti stöðunni úr 83-84 í 83-86 þegar 3.9 sekúndur voru eftir af leiknum. Stjörnur leiksins Hjá Tindastól var Adomas Drungilas mjög góður með 19 stig og 10 fráköst. Basile var með 18 stig 10 fráköst. Hjá Grindavík var Jordan Semple stigahæstur með 22 stig og 8 fráköst. Jeremy Pargo 17 stig og Deandre Kane 16 stig og 11 fráköst. Þegar Kane og Pargo skoruðu fór svakalega mikið fyrir hverju einasta stigi. Dómararnir Mjög erfiður leikur að dæma. Þeir komust vel frá þessu en fara alltof mikið í skjáinn í stað þess að standa við sínar ákvarðanir. Stemning og umgjörð Úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í Síkinu á Sauðárkróki er önnur skepna og var frábært að vera í Síkinu í kvöld. Það stóðu sig allir vel leikmenn, stuðningsmenn og sjálfboðaliðar. Unnsteinn: Það var svolítið hátt hérna Unnsteinn Rúnar leikmaður Grindavíkur var mjög ánægður með að hafa unnið Tindastól í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. „Bara geggjað. Maður reynir að nýta tækifærið eins og seinustu þrír leikir hafa verið. Ég fæ tækifærið og bara sýna að ég get spilað hérna.“ Unnsteinn fékk vítaskot undir restina og var hann með ís í æðum og setti bæði vítin ofaní. „Það var svolítið hátt hérna (Hávaðinn í Síkinu). En mér leið vel þarna. Pargo og Kane voru að segja við mig að þeir treysta mér mjög mikið. Þeir eru alltaf að segja mér að skjóta. Þú sérð Kane þarna hann kemur og hæpar mig upp þarna.“ Unnsteinn talaði um hvað væri gott að fá stuðninginn frá Kane og Pargo um að taka af skraið og skjóta stóru skotunum. „Þeir eru bara að segja mér að halda áfram að skjóta og ég hlusta bara á það.“ Unnsteinn spilaði mikið í fjórðaleikhluta og fékk mikla ábyrgð undir lok leiksins sem hann heldur betur nýtti vel. „Mér leið veð inn á vellinum. Þeir gáfu mér opinn þrist þarna og ég var ekki búinn að vera að hitta vel í dag. En þeir sögðu mér að halda áfram að skjóta.“ Tindastóll var að falla af Unnsteini í leiknum í dag og hann var að fá mikið af opnum skotum sem hann nýtti þegar mest var undir. „Það er örugglega scouting hjá þeim. Þeir eru að leyfa öðrum að skjóta mér og Ragga og hinum.“ Grindavík getur klárað einvígið á föstudaginn með sigri og er Unnsteinn mjög spenntur fyrir föstudeginum. „Það er bara spenna. Þetta er ekki búið og vonandi náum við bara að klára þetta.“ Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík