Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Valur Páll Eiríksson skrifar 12. maí 2026 21:59 Arnar Guðjónsson var ekki ánægður með Grindvíkinga eftir leik og greip orðið þegar Andri Már Eggertsson ætlaði að ljúka viðtalinu. Vísir / Guðmundur Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður eftir tap hans manna fyrir Grindavík í Síkinu á Sauðárkróki í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í kvöld. Hann kallar eftir viðurlögum fyrir DeAndre Kane, leikmanni Grindavíkur, sem var með læti eftir leik.
Grindavík vann nauman 86-83 sigur eftir spennandi leik. Mikið munaði um Unnstein Rúnar Kárason sem setti mikilvægt þriggja stiga skot á lykilaugnabliki og var svo eitursvalur á vítalínunni undir lok leiks. „Unnsteinn setti stórt skot sem fór með þetta þar sem við vorum klaufar. Við hefðum getað stoppað þá í hraðaupphlaupinu og náðum því ekki. Hann skoraði. Kredit á hann,“ segir Arnar um muninn á liðunum í samtali við Andra Má Eggertsson eftir leik. „Þetta er bara hörkuleikur. Það er aðallega byrjunin á þriðja leikhlutanum sem var ekki nógu góður hjá okkur. Þetta verður þá að smá götubolta leik. Það hentar þeim betur.“ Það virtist ætla að sjóða upp úr eftir leik þegar DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, gekk heldur hressilega fram í fagnaðarlátum að mati heimamanna og hann lenti í einhverjum útistöðum við stjórnarmenn Tindastóls. Í viðtalinu höfðu þeir Arnar og Andri Már rætt frekar um leikinn og gerðu hann upp á svipuðum nótum og að ofan. Greip orðið og var mikið niðri fyrir Þegar Andri ætlaði að ljúka viðtalinu greip Arnar hins vegar orðið og vísaði þar til hegðunar Grindvíkinga. „Ég ætla að fá að bæta einu við. Hegðun sem er ekki tekið á, er samþykkt. Það er bara guðs lukka, eins og gerðist í Grindavík í 8-liða úrslitum, haugur af fólki inn á völlinn þegar leikmenn hlaupa og senda fingurinn upp í stúku,“ segir Arnar sem var mikið niðri fyrir. „Bara eins og foreldrar þínir við þig, ef þú ert ekki leiðréttur, þá er hegðunin samþykkt. Það er líka hægt að horfa á leik eitt þar sem leikmenn kasta bolta í leikmann eftir leik, þar sem þeir labba utan í aðra leikmenn á leið í leikhlé,“ „Þar er ég ekki að tala um körfuboltatengda hluti. Ég er bara að tala um almennan fíflagang, þegar hegðun er ekki leiðrétt er það sama og hún sé samþykkt,“ segir Arnar. Þú ert þá að tala um DeAndre Kane? „Já, já. Við höfum þurft að taka á okkar hlutum“ sagði Arnar og nefndi tvö dæmi af eigin leikmönnum. „Arnar Björnsson fær tæknivillu í leik eitt á móti Stjörnunni fyrir að taka boltann úr höndunum á Pablo Bertone, þið getið fundið þessa klippu. Tæknivilla, hárrétt. Hann hefur hagað sér síðan þá,“ „Adamas Drungilas fær tæknivillu í leik fimm fyrir að öskra í andlitið á Hilmari Hennings. Hárrétt, hegðunin er leiðrétt. Það á og skal það sama yfir alla að ganga,“ sagði Arnar.
Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira