Hætta talin á ferð þegar fiskiskip fékk í skrúfuna Árni Sæberg skrifar 12. maí 2026 16:34 Sex voru um borð í Ólafi Bjarnasyni. Landsbjörg Hætta var talin á að fiskiskipið Ólafur Bjarnason frá Ólafsvík strandaði, eftir að það fékk veiðarfæri í skrúfuna undan Búlandshöfða í dag.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Landsbjörg segir að klukkan 12:16 í dag hafi áhöfnin á björgunarskipinu Björgu á Snæfellsnesi verið kölluð út á mesta forgangi. Fiskiskipið Ólafur Bjarnason frá Ólafsvík hafi fengið veiðarfæri í skrúfuna skammt undan Búlandshöfða og hafi rekið hægt að landi. Skipið hafi verið rétt rúma eina og hálfa sjómílu frá landi þegar stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði út áhöfn björgunarskipsins og hætta talin á að skipið strandaði. Sex manns hafi verið um borð. Björgunarskipið hafi verið farið úr höfn á Rifi klukkan 12:23, aðeins sjö mínútum eftir útkall, og skipstjóri þess hafi strax sett á fulla ferð austur í átt að Búlandshöfða. „Tuttugu mínútum síðar var Björg komin að Ólafi sem var þá rétt um 0,7 sjómílur frá landi. Taug var komið á milli skipanna og Björg hóf að taka létt í Ólaf meðan áhöfn Ólafs dró inn nótina, til að halda honum frá því að reka nær landi. Þegar nótin var komin um borð var stefnan sett á Ólafsvík þangað sem skipin komu rétt fyrir klukkan 15 í dag.“ Björgin hafi svo verið komin í heimahöfn á Rifi um fimmtán mínútum síðar þar sem hún hafi verið gerð klár fyrir næsta útkall.
Björgunarsveitir Snæfellsbær Sjávarútvegur Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira