Svakaleg saga um ofbeldi á vinnustað Ævar Örn Jóhannsson skrifar 12. maí 2026 13:52 Blásaklaus maður var laminn í vinnunni af samstarfsfélaga alveg upp úr þurru. Enginn vissi af hverju en engar afleiðingar voru fyrir gerandann. Mennirnir mættu svo bara áfram í vinnuna eins og ekkert hafi í skorist. Sami maður var svo ítrekað laminn aftur af sama geranda af ástæðulausu. Fleiri starfsmenn urðu einnig fyrir barðinu á honum. Skiljanlega kvartaði fórnarlambið, enda ekki boðlegt að vera barinn fyrir það eitt að mæta í vinnuna. Yfirmanni fannst loks nóg komið og skipti sér af en gerandi réðst þá bara á hann líka. Þó fékk gerandi ekki reisupassann heldur mæta allir í vinnuna daginn eftir. Yfirmaðurinn tilkynnir svo fórnarlambinu að hann geti mögulega bara fundið sér vinnu annars staðar því það væri ekkert hægt að aðhafast frekar í málinu. Hljómar þetta kunnuglega? Sennilega ekki, enda myndi enginn heilvita maður láta bjóða sér slíkt í okkar samfélagi og einstaklingur sem myndi haga sér á þennan hátt yrði líklega lokaður inni. Þetta er hins vegar staða sem börnunum okkar er boðið upp á. Börn sem eru bara að mæta í skólann. Spennt fyrir nýjum kafla í lífinu, hugrökk að taka stórt skref af því þau eru viljug til að læra. Ef þau lenda svo í ofbeldi þá eiga þau sér enga undankomuleið og verða bara að halda áfram að mæta, það eru lög sem kveða svo á um. Hvað ætli lítið saklaust barn hugsi þegar foreldrarnir skutla þeim í skólann í þessar aðstæður, í gin ljónsins vitandi að þetta er það sem mætir þeim, dag eftir dag? Ofbeldi án afleiðinga Af hverju eru engar afleiðingar við slíku ofbeldi? „Allir eiga rétt á skólavist“ er svarið sem þau fá. En hver er réttur barnanna sem verða fyrir svona ofbeldi? Eiga þau ekki rétt á að mæta í skólann og stunda nám sitt í friði? Eiga þau ekki rétt á að mæta í skólann án þess að hafa áhyggjur af því að ráðist verði á þau? Hvaða skilaboð er verið að senda börnunum? Svona hegðun verður að hafa afleiðingar. Hvað erum við annars að kenna börnunum okkar? Snýst skólaskylda kannski orðið meira um mætingu en að tryggja börnum öryggi, vellíðan og góða menntun? Það er óásættanlegt að börn fái ekki þann lærdómsfrið sem þau eiga rétt á, fá ekki þá aðstoð né öryggi sem þau eiga skilið í aðstæðum sem þau eru skyldug til að vera í. Vissulega þarf að vera til lausn fyrir þá sem þurfa aðstoð og þá sem beita ofbeldi. En sú lausn getur ekki verið að setja alla inn í sömu skólastofu og vona bara að þetta lagist. Kennarar þurfa að fá úrræði til að bregðast við þegar svona aðstæður koma upp. Þeir þurfa hreinlega að fá vald á skólastofunni sinni aftur og vald til að taka á svona hegðunarvandamálum. Það eru jú kennarar sem eyða hvað mestum tíma með börnunum okkar. Við viljum væntanlega tryggja öruggt og gott umhverfi í skólum og koma til móts við börnin okkar þar sem þau eru, svo allir geti fengið þá menntun sem þeir eiga skilið. Skóli án aðgreiningar er falleg hugsun en virkar því miður ekki, sérstaklega þegar um er að ræða ofbeldi - þar sem þolmörkin eiga að vera núll. Setjum x við M á kjördag 16. maí. Höfundur er fasteignasali í 6. Sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi, þó fyrst og fremst foreldri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Miðflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun