Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt Oddur Ævar Gunnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 11. maí 2026 19:01 Þeim hefur fjölgað sem greiða atkvæði utankjörfundar. Vísir/Sigurjón Um fjörutíu prósenta aukning hefur orðið á utankjörfundaratkvæðum í sveitarstjórnarkosningum nú í samanburði við síðustu kosningar árið 2022. Fjöldinn er svo mikill að svo getur farið að úrslit á laugardagsnótt muni ekki liggja fyrir fyrr en þessi atkvæði verða talin en þau eru talin síðust.
Þetta er meðal þess sem fram kom í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í kvöld frá Hlíðarsmára þar sem fram fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla. Fréttastofa ræddi við Sigríði Kristinsdóttur sýslumann á höfuðborgarsvæðinu og tók nokkra kjósendur sem greiða atkvæði utankjörfundar tali. Flestir eru að fara til útlanda eða út á land, enda uppstigningardagur á fimmtudag og kjörið að taka sér frí á föstudag og lengja helgina. Tæp fimmtán þúsund manns þegar búin að kjósa „Hjá sýslumanni hafa 1590 manns kosið utankjörfundar í dag. Alls hafa um 9240 kosið frá því við opnuðum 17. apríl og hjá öllum sýslumönnum og sendiráðum hafa 14.715 kosið utankjörfundar,“ segir Sigríður. „Okkur sýnist þetta vera um þrjátíu prósenta aukning hér á höfuðborgarsvæðinu og á landsvísu er þetta um 39 prósenta aukning frá 2022,“ segir Sigríður. Erfitt sé að segja til um hvað valdi en Sigríður segist skjóta á að þetta sé vegna uppstigningardags og möguleikans á langri helgi sem valdi því að margir hyggi á ferðalög. Utankjörfundaratkvæði eru talin síðust, ekki fyrr en eftir að kjörstaðir loka klukkan 22:00. Með slíkan fjölda geti farið svo að úrslit muni víðast hvar ráðast á þessum atkvæðum. „Það getur farið svo, ef það er svona aukning getur verið að úrslitin liggi ekki fyrir fyrr en byrjað er að telja.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira