Innlent

Ekið á hjólreiðamann

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Framrúða bílsins er illa farin.
Framrúða bílsins er illa farin. Vísir

Hjólreiðamaður varð fyrir bíl á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú í morgun.

Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að sjúkrabílar eru á vettvangi að bregðast við umferðarslysi. Tilkynningin barst klukkan hálf tíu.

Einn var fluttur af vettvangi á sjúkrahús. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hjólreiðamannsins en höggið virðist hafa verið töluvert þar sem framrúða bílsins varð fyrir miklum skemmdum.

Samkvæmt sjónarvottum varð hjólreiðamaður fyrir bíl og var hann borinn upp í sjúkrabíl. Á myndum af vettvangi má sjá að ökumaðurinn var að keyra deilibíl í eigu Hopp. 

Töluvert af sjúkrabílum og lögreglubílum voru á svæðinu.

Miðað við gögn frá Sjóvá eru umrædd gatnamót þau hættulegustu með tilliti til slysa. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×