Innherji

Met­hagnaður hjá BBA//Fjeldco þegar tekjurnar rufu tveggja milljarða múrinn

Hörður Ægisson skrifar
Halldór Karl Halldórsson einn af meðeigendum lögmannsstofunnar BBA//Fjeldco.
Halldór Karl Halldórsson einn af meðeigendum lögmannsstofunnar BBA//Fjeldco.

Lögmannsstofan BBA//Fjeldco, sem var meðal annars ráðgjafi við sölu ríkisins á eftirstandandi hlut sínum í Íslandsbanka í einu stærsta útboði Íslandssögunnar, skilaði sinni bestu afkomu frá upphafi í fyrra þegar tekjur félagsins jukust um liðlega fjórðung milli ára. Stjórnendur BBA//Fjeldco segja útlit fyrir enn meiri vöxt á þessu ári.


Tengdar fréttir

Fjár­festarnir sem veðja á að Drangar geti hrist upp í dag­vöru­markaðinum

Þegar félagið Drangar, sem ætlar að hasla sér völl á dagvörumarkaði í samkeppni við risana tvo sem eru þar fyrir, kláraði yfir þriggja milljarða útboð undir lok síðasta árs voru fjárfestarnir sem bættust við hluthafahópinn að stórum hluta fáeinir lífeyrissjóðir, tryggingafélög og einkafjárfestir. Með þeirri fjármögnun var hægt að halda áfram vinnu við að bæta reksturinn í matvöruhluta Dranga en vænta má þess að verslunum undir merkjum Prís muni fjölga á næstunni.

Kemur „mjög á óvart“ að stjórn ISB treysti sér ekki til að standa við sam­komu­lagið

Stóru lífeyrissjóðirnir sem eru í þeirri stöðu að eignarhald þeirra þverast með svipuðum hætti í Íslandsbanka og Skaga eru fremur fámálir um þá ákvörðun að samrunaviðræðum hafi verið slitið, á meðan afstaða sumra annarra sjóða litast af því hvar hagsmunir þeirra vega hlutfallslega meira. Stærsti einkafjárfestir Skaga segir það koma „mjög á óvart“ að stjórn Íslandsbanka hafi ekki treyst sér til að standa við samkomulagið en hún fór fram á verulegar breytingar á fyrri verðskilmálum við samruna félaganna sem yrðu aðlagaðir með tilliti gengishækkunar á bréfum bankans og gagngjaldið að hluta greitt með reiðufé.

„Mikil um­fram­eftir­spurn“ þegar Al­vot­ech seldi breytan­leg bréf fyrir 14 milljarða

Alvotech hefur gengið frá sölu á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð rúmlega 100 milljónir dala, sem kemur til nú þegar ljóst er að seinkun verður á sölu nýrra lyfja félagsins á Bandaríkjamarkað, til hóps um tuttugu alþjóðlegra fjárfesta en „mikil“ umframeftirspurn var sögð vera í útboðinu. Til að verjast markaðsáhættu lánar dótturfélag Alvotech kaupendum bréfanna jafnframt almenn hlutabréf í líftæknilyfjafélaginu sem selja þau síðan með tíu prósenta „afslætti“ miðað við dagslokagengið í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×