Hækkar verðmatið á Icelandair þótt útlit sé fyrir yfir tíu milljarða rekstrartap
Þrátt fyrir að óvissan hafi sjaldan verið meiri í rekstri Icelandair, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs og kjaradeilna við flugmenn, þá er félagið verðmetið á nærri tvöfalt hærra verði en núverandi markaðsgengi í nýrri greiningu. Því er spáð að Icelandair muni skila yfir tíu milljarða króna rekstrartapi á þessu ári en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið.
Tengdar fréttir
Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn taka Icelandair „í gíslingu“
Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins.
„Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði
Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði.
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“
„Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins.