Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. maí 2026 19:03 Jenna Huld Eysteinsdóttir er húðlæknir. vísir/vilhelm Notkun á kolólöglegu efni sem fólk sprautar sig með til að fá brúnni húðlit hefur aukist að sögn húðlæknis. Nýrnabilun og heilabjúgur eru á meðal aukaverkanna og dæmi eru um að foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra.
Efnið kallast Meló og flokkast undir peptíða. Þegar efninu er sprautað í húð hagar það sér eins og stýrihormón í líkamanum og eykur litarefni í húðinni. Umræða hefur skapast um efnið á samfélagsmiðlum þar sem fólk óskar eftir leiðum til að nálgast það í þeim tilgangi að gera húðina brúnni. Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir, segir Meló valda aukaverkunum sem mörgum þykja eftirsóknarverðar. „Þú færð ógleði og minnkar þannig matarlystin þannig að þú getir grennst og svo á kynhvötin að verða meiri.“ Jenna segir efnið kolólöglegt og ekki skilgreint sem lyf. Slappleiki og höfuðverkur eru önnur dæmi um aukaverkanir sem fylgja notkun þess auk þess sem það veldur niðurbroti vöðva. „Og þá í rauninni getur þú fengið nýrnabilun í kjölfarið og einnig hefur verið lýst heilabjúgi og fleira þannig þetta getur haft skelfilegar aukaverkanir.“ Hún segir efnið hafa verið í umferð í mörg ár en merkir ákveðna aukningu í notkun þess samhliða aukinni útlitsdýrkun. „Og þegar þeir koma til okkar í blettaskoðun, þetta eykur ekki bara melanínið í húðinni heldur líka í fæðingarblettunum, þannig að þegar við fáum þessa einstaklinga til okkar þá eru þeir oft með mjög óeðlilega svarta og dökka bletti sem gerir okkur eiginlega ókleift að greina hvort þeir séu eðlilegir eða ekki.“ Það sé sannað að þeir sem sprauti sig með Meló séu í aukinni hættu á að fá sortuæxli sem sé ein skaðlegasta tegund krabbameins. Við rannsókn á ólöglegum peptíðum hafi komið í ljós að kvikasilfur og ýmis eiturefni hafi fundist í efninu. Aðspurð hvar fólk nálgast Meló segir hún ljóst að það leki inn í landið með einhverjum hætti og dæmi um að foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vinahóp barnanna. „Og ég er ekkert viss um að hinir foreldrarnir viti af því.“
Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira