„Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. maí 2026 20:34 Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í leik kvöldsins. Vísir/Diego Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gat leyft sér að brosa eftir 3-4 endurkomusigur liðsins gegn FH í Bestu-deild karla í kvöld.
Rúnar og hans menn voru 3-1 undir í hálfleik, en snéru dæminu við í seinni hálfleik og Rúnar segir að sigurinn hafi eðli málsins samkvæmt verið sætur. „Já, klárlega. Við erum búnir að lenda í svona leikjum hérna áður. Í fyrra, í úrslitakeppninni og svo var það held ég árið þar á undan sem við vorum að tapa 3-0 í hálfleik,“ sagði Rúnar. „Það gerði þetta auðveldara fyrir okkur, vitandi það að við höfum snúið þessu við áður. Við höfum náð hér í góð úrslit og við vorum rólegir í hálfleik. Við vissum að vindurinn myndi hjálpa okkur aðeins að þrýsta þeim neðar. Við þurftum bara að nýta tækifærin okkar betur. Við nýttum þau kannski ekki alveg nógu vel í fyrri hálfleik, en þetta var rosalega opinn leikur og þrátt fyrir að það hafi kannski ekki verið frábær gæði í þessum fótboltaleik þá var fullt af færum og barátta út um allan völl. Fullt af mörkum og mikil gleði fyrir þá sem á horfðu, en mesta gleðin fyrir okkur að ná í þrjú stig.“ Þrátt fyrir að vera lentir 2-1 undir eftir rétt um tíu mínútna leik voru Framarar sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Það kom því líklega mörgum á óvart þegar FH-ingar bættu þriðja marki sínu við stuttu fyrir hálfleikshléið. „Það var frekar fúlt. Mér fannst við frekar vera nær því að jafna og áttum þarna ágætis tækifæri til að jafna í 2-2. Þeir áttu að vísu skot í stöng líka, en svo skora þeir þriðja markið á held ég 42. mínútu og það var frekar þungur biti.“ „Maður hefði auðvitað farið rólegri inn í hálfleikinn 2-1 undir en 3-1, en einhvernveginn náum við að kreista fram þrjú mörk í seinni hálfleik. Kennie (Chopart) frábær eins og alltaf, að skila mörkum úr varnarstöðu og liðið í heild sinni að leggja sig fram og berjast. FH-liðið spilar vel og ég er hissa hvað þeir eru með lítið af stigum. Maður sér hvað þeir eru að reyna að spila og maður sér hvert þeir eru að fara. Þetta hlýtur einhverntíman að jafna sig og þeir fara að vinna leiki því þeir eru með lið í það að mínu mati.“ „En fyrir okkur er frábært að við höfum komið til baka. Það gefur okkur sjálfstraust inn í sumarið og gott að vera komnir með þessi stig á töfluna.“ Að lokum var Rúnar beðinn um að lýsa því hversu gott það er fyrir lið eins og fram að hafa menn á borð við Kennie Chopart og Fred innanborðs. Chopart skoraði tvö mörk fyrir liðið og Fred lagði upp þrjú. „Við vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum. En þeir þurfa að hafa góða menn í kringum sig líka og þegar við erum með fleiri svona góða fótboltamenn í kringum þá þá kannski opnast aðeins oftar fyrir þá. En ef þeir eru teknir úr umferð þá eru aðrir sem stíga upp og gera sitt. Við erum með mörg vopn í okkar hóp og vonandi haldur þetta bara svona áfram, að við sjáum einhvern stíganda í því sem við erum að gera.“ „Ég hef svolítið saknað þess að sjá okkur tengja saman sigra og við náum núna tveimur í röð. Vonandi getum við haldið áfram að safna og vinna fótboltaleiki. Og öðlast þá trú sem þurfum að hafa til að fara aðeins lengra en við gerðum í fyrra,“ sagði Rúnar að lokum.
Besta deild karla Fram FH Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Sjá meira