Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. maí 2026 19:51 Kennie Chopart skoraði tvívegis fyrir Fram í kvöld. Vísir/Diego Fram vann magnaðan endurkomusigur er liðið heimsótti FH í fimmtu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Eftir að hafa verið 3-1 undir í hálfleik snéru Framarar dæminu við og unnu 3-4 sigur. Boðið var upp á veislu á fyrstu mínútunum á fyrsta heimaleik FH-inga á tímabilinu. Heimamenn í FH komust yfir strax á sjöttu mínútu með marki frá Adolf Daða Birgissyni eftir skallatennis í teignum áður en Ægir Jarl Jónasson jafnaði metin fyrir Framara tveimur mínútum síðar. Aðeins þremur mínútum eftir það voru FH-ingar komnir með forystuna á ný eftir að Tómas Orri Róbertsson kom boltanum í netið og staðan því orðin 2-1 eftir aðeins rétt rúmlega tíu mínútna leik. Eftir þessa mögnuðu byrjun róaðist leikurinn töluvert, í það minnsta markaskorunin. Gestirnir í Fram voru líklegri til afreka og fengu nokkur sæmileg færi, en inn vildi boltinn ekki. Það var því líklega eins og blaut tuska í andlit gestanna þegar Úlfur Ágúst Björnsson skallaði hornspyrnu Kjartans Kára Halldórssonar í netið á síðustu mínútu venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik og staðan því 3-1, FH í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Framarar voru þó ekki lengi að hleypa spennu í leikinn á ný eftir hlé því Þorri Stefán Þorbjörnsson minnkaði muninn í 3-2 með góðu skallamarki á 52. mínútu eftir hornspyrnu frá Fred. Gestirnir héldu áfram að ógna næstu mínútur, en vörn FH-inga stóð af sér áhlaup Framara. Það er allt þar til á 65. mínútu þegar Fred kom boltanum inn á teiginn þar sem fyrirliðinn Kennie Chopart var vel staðsettur og kláraði færið snyrtilega. Allt orðið jafnt á ný. Gestirnir fullkomnuðu svo endurkomuna tæpum tíu mínútum síðar með sömu uppskrift. Fred fann Kennie Chopart og fyrirliðinn kláraði færið vel í fjærhornið. Framarar í góðum málum, en FH-ingar enn í leit að taktinum í seinni hálfleik. Þrátt fyrir að þurfa sárlega á marki að halda tókst FH-ingum lítið sem ekkert að ógna marki Framara það sem eftir lifði leiks. Niðurstaðan varð því að lokum 3-4 sigur Fram, sem nú er með tíu stig í fjórða sæti deildarinnar. FH-ingar eru hins vegar enn í leit að sínum fyrsta sigri og eru aðeins með eitt stig í ellefta sæti. Atvik leiksins Undir lok leiks átti sér stað ljótt atvik þar sem bæði Sverrir Páll Hjaltested og Ísak Óli Ólafsson fengu höfuðhögg. FH-ingar þurftu að leika tveimur mönnum færri um stund í uppbótartímanum þar sem þeir tveir voru báðir utan vallar. Eftir því sem ég kemst næst voru þeir svo báðir fluttir á sjúkrahús eftir leikinn til frekari skoðunar. Stjörnur og skúrkar Kennie Chopart og Fred stela fyrirsögnunum í kvöld. Fyrirliðinn Kennie Chopart skoraði tvívegis fyrir gestina og Fred lagði upp þrjú mörk. Varnarleikur beggja liða hefur þó líklega oft verið skárri. Þrjú mörk voru skoruð á fyrstu tíu mínútum leiksins og alls urðu mörkin sjö. Það má því gera ráð fyrir að þjálfarar beggja liða vilji fara yfir varnarfærslur á næstu æfingum. Dómarinn Jóhann Ingi Jónsson og hans teymi fengu nokkuð snúið verkefni í kvöld. Bæði lið áttu oft og tíðum í erfiðleikum með að fóta sig á grasinu og boltinn var þar af leiðandi nokkuð mikið í loftinu. Menn áttu það til að fara harkalega í aðgerðir, en dómarateymið hafði nokkuð góð tök á leiknum. Stemning og umgjörð Kaplakriki skartaði sínu fegursta í sólinni þetta sunnudagskvöldið og grasið virðist allt vera að koma til eftir veturinn. Auðvitað voru aðstæður á vellinum ekki þær bestu sem boðið verður upp á í sumar, en heilt yfir var umgjörð FH-inga til fyrirmyndar, vel mætt í stúkuna og áhorfendur skemmtu sér líklegast bara nokkuð vel, enda hörkuleikur. Besta deild karla Fram FH Íslenski boltinn