Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Valur Páll Eiríksson skrifar 1. maí 2026 17:53 Martin var duglegur að mata liðsfélagana í svekkjandi tapi fyrir toppliðinu. Soeren Stache/picture alliance via Getty Images Martin Hermannsson og félagar hans í Alba Berlín virðast þurfa að líta eftir deildarmeistaratitilinum í þýsku úrvalsdeildinni í hendur Bayern Munchen eftir tap fyrir síðarnefnda liðinu síðdegis.
Bayern var fyrir leikinn með 50 stig á toppi deildarinnar en Alba með 46 stig í öðru sæti, en hafði einnig leikið leik meira. Ljóst var að Berlínarbúar þurftu sigur til að halda titilbaráttunni á lífi. Úr varð spennandi leikur þar sem liðin skiptust á forystunni í fyrsta leikhluta. Bayern náði góðm kafla í öðrum leikhluta og komst mest níu stigum yfir en í hálfleik var staðan 42-37. Alba svaraði í þeim þriðja og komst mest fimm stigum yfir, 54-49, en Bæjarar svöruðu. Staðan var jöfn 56-56 fyrir fjórða leikhlutann og spennan mikil. Þar voru það heimamenn frá Munchen sem stýrðu ferðinni og komust ellefu stigum yfir, 80-69, þegar þrjár mínútur voru eftir og var það mesti munurinn sem verið hafði í leiknum fram að því. Alba svaraði með átta stigum í röð og aðeins þriggja stiga munur, 80-77, þegar 44 sekúndur lifðu leiks. Bayern svaraði með þristi til að komast 83-77 yfir 16 sekúndum síðar og niðurstaðan ljós. Martin Hermannsson gaf tíu stoðsendingar í liði Alba Berlín og skoraði auk þess tvö stig og tók tvö fráköst. Bayern vann 85-79 sigur og er með 52 stig á toppi deildarinnar eftir 31 leik, Alba Berlín er með 46 stig og hefur spilað 32 leiki. Bayern verður því deildarmeistari en úrslitakeppnin tekur við þegar 34 umferðum er lokið.
Þýski körfuboltinn Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjá meira