Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Aron Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 12:57 Magnús Óli Magnússon var borinn af velli í gærkvöldi vísir/Anton Tímabilinu er að öllum líkindum lokið hjá Magnúsi Óla Magnússyni, leikmanni Vals að sögn þjálfara liðsins. Magnús hlaut heilahristing eftir þungt höfuðhögg í úrslitaeinvígi Olís deildarinnar gegn FH í gær og var fram á nótt á sjúkrahúsi.
Valsmenn unnu leikinn í gærkvöldi með tveimur mörkum, 32-30, og eru því komnir 2-1 yfir í einvíginu og einum sigurleik frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Það skyggði þó á gleði Valsmanna að leikmaður liðsins, Magnús Óli, skyldi meiðast. Leikmaðurinn öflugi fékk þungt högg á höfuðið er hann lenti í samstuði við Ingvar Dag Gunnarsson, varnarmann FH. „Reikna ekki með honum“ Magnús Óli lá óvígur eftir á vellinum eftir samstuðið og þurfti að flytja hann af sjúkrabörum af velli og upp á sjúkrahús þar sem að hann undirgekkst frekari skoðun og rannsóknir. „Hann var fram á nótt á spítala en er kominn heim,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals um Magnús Óla í samtali við Vísi en hann hafði fengið upplýsingar frá Magnúsi sjálfum um stöðu mála í morgun.Í ljós hefur komið að Magnús hlaut heilahristing eftir þetta þunga högg í leik gærkvöldsins. Það er stutt á milli leikja núna í úrslitaeinvíginu og geta Valsmenn klárað einvígið á mánudaginn kemur með sigri og tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.„Ég geri ekki ráð fyrir honum það sem eftir lifir tímabils,“ segir Ágúst um horfurnar fyrir Magnús á lokametrum tímabilsins sem inniheldur að lágmarki einn leik. En fari svo að FH vinni leik liðanna á mánudaginn næstkomandi í Kaplakrika fer einvígið í oddaleik sem ráðgert er að fari þá fram fimmtudaginn 7.maí. Magnús er með reynslumestu leikmönnum Valsvísir/Hulda Margrét Aðspurður um það hvernig hljóðið í Magnúsi hafi verið er hann ræddi við hann í morgun hafði Ágúst þetta að segja: „Hann var svo sem bara að vakna, pínu daufur. Hann þarf bara tíma til að ná sér, taka einn dag fyrir í einu. En ég myndi segja það ólíklegt að hann taki þátt í þessum endaspretti.“ Slæmt fyrir Valsmenn að missa Magnús Óla en að auki er Dagur Árni Heimisson einnig frá. „Maggi er byrjunarliðsmaður, bara mjög slæmt að missa hann. Leikmaður sem er frábær í bæði vörn og sókn en það kemur maður í manns stað. Ungir leikmenn fá stærra hlutverk. Við tökumst á við þetta og undirbúum okkur fyrir erfiðan leik. Hvort sem að Magnús sé með eða ekki yrði það alltaf erfiður leikur.“
Olís-deild karla Valur Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira