Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þorsteinn Hjálmsson skrifar 30. apríl 2026 18:47 Allan Norðberg var kátur í leikslok. vísir/Anton Valur er einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum í handbolta, eftir sigur á FH í kvöld. Lokatölur 32-30 í æsispennandi leik og staðan því orðin 2-1 fyrir Val í einvíginu. Fyrstu tíu mínútur leiksins var leikurinn hnífjafn og staðan 6-6. FH-ingar tóku þá góða rispu þar sem Jón Þórarinn lokaði markinu og varnarmenn FH sömuleiðis náðu að stela boltanum sem skilaði sér í þremur auðveldum mörkum í röð. Ágúst Jóhannssyni, þjálfara Vals, leist ekkert á blikuna á þessum tímapunkti og tók leikhlé. Eftir leikhléið kom gamla brýnið Magnús Óli inn í liðið. Ásamt honum og Björgvini Páli í broddi fylkingar náðu Valsmenn að snúa leiknum sér í hag. Arnór Snær Óskarsson innsiglaði sigur Vals í lokin með draumamarki.vísir/Anton Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, greip þá í taumana og tók leikhlé þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum og tveggja marka munur á liðunum, 16-14. Stuttu seinna átti sér stað óhugnanlegt atvik. Magnús Óli fékk þá öxl varnarmanns FH í andlitið með þeim afleiðingum að Magnús Óli steinlá. Eftir nokkra stund var hann borinn af velli og fluttur í sjúkrabíl af Hlíðarenda. FH fékk tækifæri á að jafna leikinn með lokaskoti fyrri hálfleiks af vítalínunni, en Björgvin Páll varði vel vítakast Símon Michaels. Staðan 18-17 í hálfleik fyrir heimamönnum. Gestirnir hófu síðari hálfleikinn betur og jöfnuðu leikinn strax. Komu þeir sér í tveggja marka forystu eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik og á sama tíma missti Valur mann af velli í tvær mínútur vegna mótmæla af varamannabekk Vals. Byrinn var því svo sannarlega í seglum FH. Valsmenn fögnuðu vel með stuðningsmönnum sínum í kvöld.vísir/Anton Hins vegar þá lögðu Valsmenn engar árar í bát og snéru leiknum við á næstu tíu mínútum og komu sér í fjögurra marka forystu. Staðan 29-25 og tíu mínútur eftir. Með hörku, elju og dugnaði minnkuðu FH-ingar muninn niður í eitt mark þegar fimm mínútur voru eftir. Restin af leiknum einkenndist af algjöru harðlífi sóknarlega. Báðar varnir voru feikilega sterkar og fáir tilbúnir að taka af skarið og eiga á hættu að verða skúrkar. Lokamínútan gekk því í garð og Valur með eins marks forystu og með boltann. Eftir langa sókn tókst eins besta leikmanns Olís-deildarinnar, Arnóri Snæ Óskarssyni, að koma boltanum efst í markhornið utan af velli fyrir framan stæðilega vörn FH. Aðeins 15 sekúndur voru þá eftir af leiknum, sem reyndist of skammur tími fyrir FH til að brúa tveggja marka mun. Atvik leiksins Draumaskot Arnórs í lokasókn Vals í leiknum sem gulltryggði sigurinn. Eins og fyrr segir þá var sóknarleikur beggja liða erfiður á lokakaflanum og því þurfti einhverja snilld til þess að brjóta á bak öfluga vörn andstæðingsins, sem Arnór Snær náði að brydda upp á. Stjörnur og skúrkar Arnór Snær kom að 12 mörkum í þessum leik, 5 mörk og 7 stoðsendingar. Sennilega öflugasti sóknarmaður Olís-deildarinnar að sýna gæði sín en og aftur. Bjarni Í Selvindi var einnig feikilega öflugur fyrir heimamenn, sérstaklega í ljósi þess að Magnús Óli datt út. Sex mörk frá Bjarna. Hjá FH skein stjarna Ómars Darra skært. Var hann með algjört skotleyfi í þessum leik og skoraði hann níu mörk úr þeim 13 skotum sem hann tók. Skúrkurinn er hinn reyndi Daníel Freyr í marki FH. Kom inn í markið í seinni hálfleik og virtist oft á tíðum langt frá því að vera líklegur til þess að verja skot. Hann varði þó tvö skot af þeim tíu sem hann fékk á sig, en það er einfaldlega allt of lítið þegar allt er undir á lokakafla leikja í handbolta. Dómarar Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson höfðu góða stjórn á þessum leik. Vissulega hefðu þeir átt að stöðva leikinn þegar Magnús Óli slasaðist, en fyrir utan það var frammistaða þeirra heilt yfir góð. Þó má alltaf tína saman smærri atvik sem hefði mátt gera betur í. Stemning og umgjörð Eins og staðan er í dag er það vandmeðfarið að vera Valsari. Á sama tíma og þessi leikur fór fram var karlalið Vals í körfubolta að etja kappi við Grindavík í úrslitakeppninni og því erfitt fyrir stuðningsmenn félagsins að vera á báðum stöðum. Þrátt fyrir það var góð mæting á þennan leik, hjá bæði Völsurum og FH-ingum. Ekkert vantaði upp á vandaða umgjörð á Hlíðarenda í kvöld. Sigursteinn Arndal: „Það vantaði bara upp á lítið hér og þar“ „Það vantaði bara upp á lítið hér og þar. Ég set ekkert út á liðið mitt í rauninni. Við bara sýnum frábæra vinnusemi og góðan karakter,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, stuttu eftir tapið. „Þetta eru smáatriði. Við þurfum að halda aðeins fastar þegar við erum komnir með góða stöðu, þeir komust full auðveldlega inn í þetta aftur. Það er svona tilfinningin mjög stuttu eftir leik.“ Sigursteinn Arndal og hans menn voru nálægt því að sækja útisigurinn sem þeir þurfa til að verða Íslandsmeistarar.vísir/Anton Aðspurður hvers vegna FH náði ekki að halda betur í þá forystu sem liðinu tókst að mynda nokkru sinnum í leiknum þá hafði Sigursteinn þetta að segja. „Maður verður að fá að skoða það. Það gerist líka í fyrri hálfleik, vorum komnir með tveggja til þriggja marka stöðu sem fer full auðveldlega frá okkur. Ég vil bara ítreka að ég er ánægður með FH-liðið og við verðum bara að finna nokkrar auka prósentur og mæta klárir í Krikann með okkar fólki á mánudaginn.“ FH er með bakið upp við vegg. Sumarfrí eða oddaleikur, um það snýst leikurinn á mánudaginn hjá FH. Sigursteinn segir ekkert annað koma til greina en að svara með sigri á mánudaginn. „Við gerum okkur grein fyrir því að við verðum að svara og það er ekkert annað sem kemst að heldur en það og við munum gera það á mánudaginn.“ Olís-deild karla Valur FH
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn