Áttu langt símtal Agnar Már Másson skrifar 29. apríl 2026 18:32 Trump og Pútín, sem sjást hér á leiðtogafundi í ágúst 2025, ræddu saman í 90 mínútur, að sögn ráðamanns í Kreml. AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma.
Júrí Úsjakov, ráðgjafi Rússaforseta, greinir frá þessu í samtali við miðilinn Interfax, að því er Kyiv Independent greinir frá. Ekki er ljóst hvenær þeir ræddu saman, en það hefur verið nýlega. Haft er eftir Úsjakov að starfsbræðurnir hafi rætt stríðið í Úkraínu en einnig stríðið í Íran. Samtal þeirra hafi verið „vinalegt, beinskeytt og fagmannlegt“ að sögn ráðgjafans. Pútín er sagður hafa kveðist tilbúinn að lýsa yfir tímabundnu vopnahléi í Úkraínu í tilefni Sigurdagsins í Evrópu, sem haldinn er hátíðlegur í Rússlandi 9. maí til að minnast uppgjafar nasistanna í seinni heimsstyrjöldinni 1945. Trump hafi auk þess tekið vel í þessar hugmyndir. Þótt Pútín hafi hafnað þeim skilyrðislausu vopnahléstillögum sem Úkraínumenn hafa lagt fram til að hefur hann ítrekað lagt til tímabundin og takmörkuð vopnahlé, svo sem yfir helgidaga eins og páska eða jól. Ráðamenn í Kænugarði hafa sagt að Rússar hafi ítrekað brotið fyrri „vopnahlé“ og hafa Úkraínumenn skráð yfir 400 brot á meintu vopnahléi sem lýst var yfir um páskana. Ekkert símtal er á dagskrá milli Trump og Volodimírs Selenskí Úkraínuforseta í augnablikinu en það getur breyst „á næstu mínútum“ samkvæmt því sem Kyiv Independent hefur eftir heimildarmönnum í úkraínsku forsetahöllinni. Að sögn Úsjakovs mun Trump enn fremur hafa sagt að lausn á stríðinu milli Úkraínu og Rússlands væri yfirvofandi. Umleitanir af hálfu Bandaríkjamanna til þess að koma á friði í Úkraínu hafa að mestu leyti stöðvast frá því að átök brutust út í Mið-Austurlöndum milli Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna annars vegar og Írana hins vegar. Pútín mun hafa haldið því fram í símtali sínu við Trump að Rússar héldu áfram að sækja fram í Úkraínu og að þeir gætu jafnvel sigrað, samkvæmt því sem haft er eftir Úsjakov, sem mun enn fremur hafa sagt að Rússar „vilja frekar gera þetta í gegnum viðræður“. Seinast áttu þeir símtal 10. mars og nam það samtal klukkutíma.
Donald Trump Vladimír Pútín Rússland Úkraína Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira