Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. apríl 2026 06:52 Svo virðist sem Comey hafi verið að senda pólitísk skilaboð um að koma ætti Trump úr embætti en ekki gert sér grein fyrir því að túlka mætti tölurnar sem hótun um ofbeldi. Getty/Win McNamee James Comey, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglunnar, hefur verið ákærður fyrir líflátshótun í garð Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli myndar sem hann birti á samfélgsmiðlum í fyrra.
Á myndinni mátti sjá tölurnar 86 og 47 en samkvæmt erlendum miðlum er 86 slangur fyrir „að fjarlægja“. Donald Trump er nú 47. forseti Bandaríkjanna. Comey hefur sagt að honum hafi ekki verið kunnugt um þýðingu talnanna en Trump og aðrir embættismenn hafa túlkað þær sem hótanir í garð forsetans. „Ég er enn saklaus, ég er enn óhræddur og ég trúi enn á sjálfstæða alríkisdómstóla.“ Að sögn Comey var hann meðvitaður um að tölurnar fælu í sér pólitísk skilaboð en ekki að þær yrðu túlkaðar sem hótun um ofbeldi. Hann tók færsluna út þegar honum varð það ljóst. Kash Patel, núverandi forstjóri FBI, greindi frá ákærunni í gær og sagði Comey hafa vitað vel að færslan myndi vekja athygli og uppnám. Trump lét Comey fjúka á fyrra kjörtímabili sínu eftir að síðarnefndi hóf rannsókn á meintum afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016. Þetta er í annað sinn sem hann er ákærður í valdatíð Trump, sem virðist mjög áfram um að koma Comey á bak við lás og slá. Síðasta haust voru gefnar út ákærur á hendur honum fyrir að bera ljúgvitni fyrir þinginu í september árið 2020. Ákærurnar voru felldar niður í nóvember.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira