Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Birgir Olgeirsson skrifar 28. apríl 2026 22:31 Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá Eflu. Sigurjón Ferðatími á tíu kílómetra leið á milli Hafnarfjarðar og Háskóla Íslands getur þrefaldast þegar framhaldsskólar og háskólar hefja starf að nýju síðsumars. Leið sem annars tekur um sextán mínútur á bíl getur tekið fimmtíu mínútur í morgunumferðinni.
Þetta kom fram í máli Daða Baldurs Ottóssonar, samgönguverkfræðings hjá Eflu, á ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu í dag. Ráðstefnan bar yfirskriftina Greiðari leið – Hugmyndir óskast. „Ef þú leggur af stað um átta eða milli átta og átta þrjátíu, þá tekur þessi sama leið 50 mínútur í stað 16 mínútna,“ sagði Daði. Skiptir máli hvort farið er fyrir átta eða eftir níu Daði segir að munurinn ráðist ekki aðeins af því hvort skólar séu byrjaðir, heldur einnig af því hvenær fólk leggur af stað. Það geti munað tugum mínútna að fara áður en mesta morgunumferðin skellur á, eða bíða þar til hún hefur gengið niður eftir klukkan níu. „Þetta skiptir rosalega miklu máli í dag; að fara nógu snemma eða seint af stað. Það getur sparað þér tíma,“ sagði hann. Að mati Daða sýna tölurnar hversu viðkvæmt umferðarkerfið er orðið þegar stórir hópar fara af stað á sama tíma. Þá þurfi ekki mikið til að ferðatíminn lengist hratt. „Það sem við erum að sjá er að það er að hægjast á umferðinni. Milli ára sjáum við að það er alltaf að bætast í umferðina, það eru fleiri á ferðinni. Þetta þýðir bara að við erum lengur að ferðast á milli staða,“ sagði Daði. Fyrsta kennslustundin á sömu tuttugu mínútunum Ein hugmyndin sem Daði nefndi á ráðstefnunni snýr að upphafi skóladagsins. Hann segir ástæðu til að skoða hvort hægt sé að dreifa álaginu betur, í stað þess að stór hluti nemenda og starfsfólks fari út í umferðina á sama tíma. „Við þurfum kannski að skoða hvort við þurfum öll að vera að fara af stað á sama tíma. Framhaldsskólar og háskólar eru með sína fyrstu kennslustund á sömu tuttugu mínútunum,“ sagði Daði. Hann segir að hliðrun tíma geti verið ein einfaldasta leiðin til að létta á kerfinu án þess að ráðast strax í stórar framkvæmdir. „Hliðra því hvernig við mætum í skóla eða vinnuna, það getur verið liður í því að létta á umferðinni og getur sparað þér umtalsverðan tíma,“ sagði hann. Daði lýsir vandanum þannig að hann verði ekki leystur með einni töfralausn, heldur mörgum aðgerðum sem vinni saman. „Rauði þráðurinn er svolítið að margt smátt gerir eitt stórt,“ sagði hann. Strætó fastur í sömu töfunum Daði nefndi einnig heimavinnu og samflot sem leiðir til að fækka bílum á mesta álagstímanum. Þá þurfi að bæta för strætó, enda sitji almenningssamgöngur víða fastar í sömu umferð og einkabílar. „Það skiptir líka máli að stuðla að fljótari strætó. Hann er að stórum hluta í sömu töfunum,“ sagði Daði. Hann segir að allt sem greiði leið strætó geti haft áhrif á stærri myndina, þar sem markmiðið sé að draga úr þrýstingi á helstu stofnleiðum. „Allt sem við getum gert fyrir strætó er að fara að hjálpa í þessari stóru vegferð að draga úr umferðarálagi,“ sagði hann. Fleiri íbúar, fleiri bílar Frá árinu 2019 hefur bílaumferð aukist jafnt og þétt á höfuðborgarsvæðinu að sögn Daða. Hann segir þróunina haldast í hendur við íbúafjölgun og bendir á að fyrir hverja áttatíu nýja íbúa geti bæst við allt að sextíu skráð ökutæki. „Það sem við erum að sjá, það hefur verið jöfn og þétt aukning í bílaumferð síðustu ár, frá 2019. Í raun og veru, þar sem við erum að mæla umferðina, þá erum við alltaf að mæla fleiri ökutæki í hverri viku,“ sagði Daði. Ef ekkert breytist muni umferðin halda áfram að þyngjast eftir því sem íbúum fjölgar. „Að öllu óbreyttu, ef við erum að fjölga á sama vexti, þá eykst bílaumferðin bara í sambærilegu hlutfalli við það,“ sagði hann. Samgöngusáttmálinn eigi að breyta kúrsinum Daði segir að samgöngusáttmálinn sé meðal annars hugsaður til að snúa þessari þróun við. Þar sé bæði horft til framkvæmda á stofnvegum og þess að fleiri sjái sér hag í öðrum ferðamáta en einkabílnum. „Ástæðan fyrir því að samgöngusáttmálinn er til staðar er akkúrat til þess að reyna að breyta um kúrs,“ sagði Daði. Hann segir að breytingin þurfi að felast í blöndu af betri innviðum og breyttum venjum. „Bæði að fá fleiri yfir í strætó og hjóla og ganga meira, en svo líka náttúrulega að greiða umferðina með stofnvegaframkvæmdum,“ sagði hann. Daði segir vonir standa til þess að þegar þær aðgerðir fari að skila sér verði hægt að hægja á þeirri þróun sem nú blasir við. „Þegar þessar framkvæmdir fara af stað, þá megum við búast við að vonandi náum við að breyta þessum kúrs og fleiri sjá hag sinn í því að nota annan fararmáta en bílinn,“ sagði Daði.
Samgöngur Skóla- og menntamál Umferð Reykjavík Hafnarfjörður Borgarlína Strætó Mest lesið „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Innlent Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Erlent Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Innlent Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Innlent Fleiri fréttir Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Sjá meira