Tala dýrsins 666 og Neró keisari Atli Ísleifsson skrifar 27. apríl 2026 08:00 Frægasta mýtan um Neró er þó eldurinn mikli í Róm árið 64 e.Kr. Getty Fáir eiga sér jafn blóði drifin og skrautleg eftirmæli í mannkynssögunni og rómverski keisarinn Neró. Flestir hafa heyrt söguna af geðsjúka harðstjóranum sem lék á fiðlu á meðan Rómaborg brann til ösku. En kemur það heim og saman við staðreyndir?
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldsins kafa prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir ofan í lygilegar samsæriskenningar fornaldar og rýna í manninn á bak við mýtuna. Eitraðir sveppir og banvænn lúxusbátur Leið Nerós að krúnunni var vörðuð svikum, þar sem móðir hans, hin valdamikla Júlía Agrippína, spilaði stærsta hlutverkið. Hún tryggði syni sínum völdin, hugsanlega með því að byrla eiginmanni sínum Claudíusi keisara, eitur. Þegar Neró varð eldri og vildi losna undan stjórn móður sinnar svaraði hann í sömu mynt. Eftir að gríðarlega flókið tilræði sem fólst í að reyna að drekkja henni í sérsmíðuðum lúxusbát fór út um þúfur, endaði hann einfaldlega á því að senda leigumorðingja heim til hennar. Fiðlan sem var ekki til Frægasta mýtan um Neró er þó eldurinn mikli í Róm árið 64 e.Kr. Sannleikurinn er sá að Neró spilaði í það minnsta ekki á fiðlu á svölunum á meðan þegnar hans brunnu inni. Fiðlan hafði ekki einu sinni verið fundin upp á þessum tíma og auk þess herma heimildir að keisarinn hafi verið staddur 50 kílómetrum fyrir utan borgina. Hins vegar nýtti hann sér neyðina til hins ýtrasta eftir brunann og hófst strax handa við að reisa sér yfirgengilega oflætishöll, Gullna húsið, ofan á rústunum. Þegar almenningur fór að hvísla um að keisarinn sjálfur hefði kveikt eldana til að stækka við sig, þurfti hann blóraböggul. Þann blóraböggul fann hann í nýjum, fámennum trúarsöfnuði sem fólk þekkti lítið til - kristnum mönnum. Neró beitti þá hrottalegum ofsóknum til að dreifa athyglinni og gekk svo langt að nota þá sem lifandi kyndlaí einkagörðum sínum. Valdatími Nerós var frá 54 til 68 e.Kr. Getty Iron Maiden og andkristur Í þættinum rekja Eiríkur og Hulda hvernig tala dýrsins 666 úr Opinberunarbók Jóhannesar er í raun sögulegt dulmál. Með því að nota forna talnaspeki hafa sagnfræðingar samtímans sýnt fram á að talan stendur einfaldlega fyrir nafnið „Neró Keisari“. Fyrir frumkristna menn var hann bókstaflegur holdgervingur illskunnar og andkrists. Saga sigurvegaranna Neró var á endanum yfirgefinn af öllum og stytti sér loks aldur. En alþýðan, sem dýrkaði hann meira en rómverska yfirstéttin vildi viðurkenna, neitaði að trúa því að hann væri allur og lengi vel lifði sú kenning góðu lífi að hann hefði flúið til Parþíu (núverandi Írans) og myndi snúa aftur með her. Þáttastjórnendur velta því upp að lokum hvort Neró hafi mögulega verið fórnarlamb rómverskrar ófrægingarherferðar. Þótt hann hafi verið grimmur harðstjóri, var sagan skrifuð af fjandmönnum hans. Flavíanska keisaraættin sem tók við völdum í kjölfarið þurfti að réttlæta valdarán sitt með því að mála forverann upp sem algjört skrímsli. Vespasíanus keisari gekk svo langt að fylla upp í manngerða stöðuvatnið við höll Nerós og reisa Colosseum hringleikahúsið ofan á því, gagngert til að þurrka út arfleifð hans af yfirborði jarðar. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér á síðunni eða á helstu hlaðvarpsveitum. Að neðan má svo heyra spjall þeirra Eiríks og Huldu í Bítinu á Bylgjunni.
Skuggavaldið Ítalía Einu sinni var... Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Fleiri fréttir Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Sjá meira