Keflavík - Haukar 98-81 | Allt jafnt í einvíginu Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar 24. apríl 2026 21:00 Sara Rún Hinriksdóttir og stöllur hennar áttu ekki í miklum vandræðum í kvöld. Hulda/Vísir Keflavík vann öruggan 98-81 sigur á Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Með sigrinum jafnaði Keflavík einvígið 1-1. Keflavíkurkonur mættu grimmar til leiks og tóku snemma frumkvæðið. Þær komust í stöðuna 18-10 eftir fimm mínútna leik og juku forskotið enn frekar í 22-10 skömmu síðar. Haukakonur reyndu að svara fyrir sig með tveimur þristum í röð og minnkuðu muninn í 24-16, og síðar í 26-21. En Keflavíkur konur áttu þó lokaorðið í leikhlutanum með þristi og náðu þá átta stiga forskoti, 29-21. Heimakonur hófu annan leikhluta af krafti og skoruðu fyrstu sex stig hans sem kom þeim í 35-21. Gestirnir náðu um stund að minnka muninn niður í fjögur stig, 40-36, en nær komust þær ekki. Heimakonur svöruðu með sterkum kafla og juku muninn hratt aftur, meðal annars upp í 56-40 á 19. mínútu. Keflavík gáfu ekkert eftir það sem eftir lifði hálfleiks og fóru með ellefu stiga forskoti inn í leikhléið, 31-20 Heimakonur héldu áfram á sömu braut í þriðja leikhluta og var staðan orðin 65-41 snemma í honum. Þær voru afar beittar í sókninni og nýttu færin sín vel á meðan Haukar áttu fremur erfitt uppdráttar.Munurinn hélt áfram að vaxa og var kominn í 84-54 þegar mínúta var eftir af leikhlutanum. Keflavíkurkonur voru því komnar í afar þægilega stöðu fyrir lokakaflann. Gestirnir mættu mun ákveðnari í seinasta leikhlutann og skoruðu fyrstu ellefu stig hans sem minnkaði muninn í 84-67. Heimakonur svöruðu þó með þristi frá Thelmu Dís og náðu aftur tökum á leiknum. Þrátt fyrir ágætar atlögur Hauka náðu heimakonur alltaf að halda þeim í hæfilegri fjarlægð. Keishana Washington setti niður mikilvægan þrist þegar um þrjár mínútur voru eftir og í kjölfarið tóku Keflvíkingar endanlega fram úr. Lokatölur Keflavík 98 – 81 Haukar og er staðan orðin 1-1 í einvíginu Atvik leiksins Þessi byrjun leiks hjá Keflavík fær stimpilinn, hún var rosaleg, þær voru að sýna fram á að úrslit síðasta leiks bitu ekkert á þær, heldur gerðu þau þær eflaust mun hungraðari í að sýna hvað í þeim býr. Stjörnur Sara Rún Hinriksdóttir skilaði sínu í dag fyrir heimakonur, 21 stig og fimm stoðsendingar í dag. Krystal Jade-Freeman var virkilega góð í dag fyrir gestina, 25 stig hjá henni í dag. Dómararnir Þríeyki kvöldsins skipuðu þeir Sigmundur Már, Jakob Árni og Eggert Þór og Stóðu þeir sig bara ágætlega, þeir höfðu þó góð tök á leiknum heilt yfir. Stemning og umgjörð Það var góð mæting í kvöld, gaman að sjá hversu margir nýttu sér föstudagskvöldið fyrir þessa veislu! Einnig var virkilega gaman að sjá „die-hard“ stuðningsmann Hauka mæta með rautt skegg, alveg eldrautt, og í rauðum æfingagalla til að toppa „look“-ið, mikið af rauða litnum í stúkunni, sem er hið besta mál! Umgjörðin virkilega flott hér í HS- orku höllinni og fá starfsmenn og sjálfboðaliðar hrós í kladdann fyrir kvöldið. Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Haukar
Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Íslenski boltinn
Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Íslenski boltinn