„Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Hagkaup 22. apríl 2026 08:18 Verslanir Hagkaups hafa síðustu daga fyllst af litríkum sumarleikföngum, útivistarvörum, reiðhjólum, hjólreiðavörum, grillvörum og öllu því sem fylgir því að taka á móti sumrinu. Það er ákveðin tilfinning sem fylgir því þegar sumarið lætur loksins sjá sig á Íslandi. Dagarnir lengjast, grillin fara í gang og fjölskyldur og vinahópar byrja að plana samverustundir utandyra. Í verslunum Hagkaup er sú stemning þegar mætt og meira til. „
Við finnum alltaf mikla gleði þegar þessi tími árs gengur í garð. Fólk er tilbúið að njóta, hitta sitt fólk og gera vel við sig. Þá viljum við vera staðurinn þar sem allt er tilbúið fyrir sumarið,“ segir Eva Laufey Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups en verslanirnar hafa síðustu daga fyllst af litríkum sumarleikföngum, útivistarvörum, reiðhjólum, hjólreiðavörum, grillvörum og öllu því sem fylgir því að taka á móti sumrinu af krafti. Hjólatíminn hafinn Með sumrinu eykst áhugi landsmanna á hjólreiðum og útiveru og segir Eva Hagkaup leggja mikla áherslu á þann flokk. „Við erum með mikið úrval af reiðhjólum fyrir bæði börn og fullorðna ásamt hjálmum, lásum, pumpum og öðrum fylgihlutum. Það er alltaf gaman þegar fólk fer að taka hjólin fram aftur og njóta þess að hreyfa sig úti í góða veðrinu.“ Fyrstu grillkvöldin alltaf sérstök Að sögn Evu er fátt sem toppar fyrsta grillkvöld sumarsins. „Það er eitthvað sérstakt við að taka grillið fram aftur, finna grillilminn og setjast niður með góðum mat í góðum félagsskap. Verslanir okkar eru nú fullar af ljúffengu grillkjöti, fersku meðlæti, salötum og öllu sem þarf til að gera kvöldið bæði einfalt og skemmtilegt.“ Hún segir viðskiptavini sækjast í bæði klassíkina og nýjar hugmyndir yfir sumarið. „Sumir vilja góðan hamborgara eða marinerað kjöt á grillið, aðrir vilja prófa eitthvað nýtt. Við leggjum áherslu á fjölbreytt úrval þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi.“ Leikur, gleði og fjölskyldustundir En sumarið snýst ekki bara um mat. „Það er ekkert skemmtilegra en að fara út að leika á sumrin, fjölskyldur saman í garðinum og fólk að njóta íslenska sumarsins þegar það gefst. Þess vegna erum við með mikið úrval af sumarleikföngum, boltum, vatnsleikja leikföngum og alls konar skemmtun fyrir bjarta daga.“ Allt á einum stað fyrir sumarið Eva segir markmiðið einfalt: að gera sumarið aðeins auðveldara og skemmtilegra. „Við viljum að fólk geti komið til okkar og fundið allt sem þarf fyrir sumarið á einum stað. Hvort sem það er fyrir grillveislu, hjólatúr, ferðalag, leik í garðinum eða notalegt kvöld á pallinum.“ Og ef marka má stemninguna í verslunum Hagkaups er eitt ljóst: Sumarið er mætt. Úrvalið má skoða inn á www.hagkaup.is auk þess er úrvalið mun meira í verslunum Hagkaups, sjón er sögu ríkari.
Mest lesið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Tíska og hönnun Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Bíó og sjónvarp Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Lífið Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira