Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Eiður Þór Árnason skrifar 18. apríl 2026 11:16 Ljósmyndin kemur úr safni. Vísir/SIgurjón „Þeir hafa rekið „nútíma fámennisveldi“ (e. oligarchy) í áratugi. Nú segja tuttugu heimildarmenn frá pólitískum áhrifum og spillingu í íslenskum sjávarútvegi.“ Svona hljóðar fyrirsögn ítarlegrar úttektar sem birtist í danska blaðinu Berlingske í dag þar sem fjallað er um þróun kvótakerfisins og ítök sjávarútvegsfyrirtækja í íslensku samfélagi.
Nafngreindir og ónafngreindir viðmælendur miðilsins lýsa „fámennisveldi“ þar sem fámennur hópur hefur óhóflega mikil áhrif á pólitískar ákvarðanir og iðnaði sem byggi á „ótta, stjórnun, græðgi og pólitískum áhrifum.“ „Út á við er Ísland þekkt sem friðsælt lýðræðisríki sem græðir mikið á nýveiddum fiski úr nærliggjandi hafsvæðum. En á Íslandi kraumar önnur frásögn um valdatengsl í landinu,“ segir í inngangi greinarinnar. Heimildarmenn blaðsins eru sagðir telja núverandi og fyrrverandi stjórnmálamenn, embættismenn, hagfræðinga og starfsmenn útgerðarfyrirtækja. Berlingske hefur eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að hann hafi reynt að „laga“ vandamálið en sterkur þrýstihópur standi í vegi þess. Þá lýsi hann samfélagi sem einkennist af eiginhagsmunum og frændhygli. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.Vísir/Sigurjón „Það er vandamál á Íslandi að stjórnmálamenn taka sérhagsmuni að miklu leyti til greina,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra. Hann vill þó ekki ganga svo langt að tala um fámennisveldi. Berlingske segir að aðrir fyrrverandi og núverandi stjórnmálamenn fullyrði að þeir hafi upplifað „þrýsting“ og „óbeinar ógnir“ frá sjávarútveginum. Daði Már leggur fyrst og fremst áherslu á tengslin milli Sjálfstæðisflokksins og sjávarútvegsins. Fullyrða hann og fleiri heimildarmenn danska miðilsins að það sé í raun „bein lína“ frá Sjálfstæðisflokknum til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Elíta með völdin Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, er afdráttarlaus. „Það er ákveðin elíta sem hefur völdin á Íslandi – það er nánast ekkert eftir fyrir alla aðra,“ segir hann og heldur áfram: „Ólíkarkar eru líklega besta orðið til að lýsa þeim.“ Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi formaður atvinnuveganefndar.Vísir/Anton Brink Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, tekur undir í samtali við Berlingske. „Við erum orðin fámennisveldi (d. oligarki). Það er raunveruleikinn.“ Gylfi Magnússon, hagfræðingur og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að „fámennisveldi [sé] gagnlegt hugtak.“ Þorvaldur Gylfason, prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands, gengur enn lengra. Þorvaldur Gylfason prófessor emeritus í hagfræði.Vísir/Vilhelm „Ísland er orðið nútíma fáveldisríki og ólígarkarnir eru útgerðarmennirnir sem eru í grundvallaratriðum nýrík og þröng stétt valdamikils fólks,“ segir Þorvaldur. Stór hluti upplifði spillingu Danski miðillinn segist hafa óskað eftir svörum frá hópi fólks með faglega reynslu eða beina þekkingu á íslenskum sjávarútvegi og flestir þeirra hafi svarað því að „spilling [væri] alvarlegt vandamál á Íslandi sem þyrfti að lagfæra strax.“ Þá vísar Berlingske í könnun Maskínu frá árinu 2019 þar sem 72,6% svarenda sögðu mikla spillingu vera í íslensku viðskiptalífi og 71,9% sögðu það sama eiga við um stjórnmálin. Berlingske fjallar einnig um starfsemi Samherjasamstæðunnar í Namibíu og meint mútubrot, peningaþvætti og auðgunarbrot þar í landi. Greint var frá því síðasta sumar að rannsókn embættis héraðssaksóknara á málinu væri lokið og gögnum hefði verið komið til saksóknara embættisins. Níu manns, bæði fyrrverandi og núverandi starfsmenn Samherja, eru með réttarstöðu sakbornings í málinu. Þá er rætt við Jóhannes Stefánsson, uppljóstrara og fyrrverandi stjórnanda hjá Samherja í Namibíu, sem grunar að eitrað hafi verið fyrir sér eftir að hann hætti störfum hjá fyrirtækinu í desember árið 2016. Einnig fjallar danski miðillinn um umfjöllun Heimildarinnar og Kjarnans þar sem greint var frá því að starfsmaður Samherja hafi áreitt Helga Seljan blaðamann, aðgerðir svokallaðrar „Skæruliðadeildar“ fyrirtækisins og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi. Sömuleiðis er úthlutun kvóta í árdaga fiskveiðistjórnunarkerfisins og þróun þess gerð að umtalsefni. Daði Már fjármálaráðherra segist í samtali við Berlingske hafa reynt að breyta kerfinu og kallað eftir því að hluti af kvótanum verði settur til hliðar og seldur á útboði á hverju ári. Aðspurður hvers vegna það hafi ekki orðið að veruleika svarar Daði: „Leyfið mér að orða það svona: Það er mjög öflugur pólitískur þrýstihópur.“
Samherjaskjölin Sjávarútvegur Mest lesið Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Sjá meira