Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Jakob Bjarnar skrifar 15. apríl 2026 11:05 Eyþór Harðarson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Eyjum, gaf það út að Íris Róbertsdóttir yrði bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Nú er komið á daginn að engin eining er um það innan flokks en svo virðist sem klofningurinn 2018 sitji í mörgum manninum. vísir/samsett Mikill skjálfti er innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og snýr ágreiningurinn um bæjarstjóraefnið Írisi Róbertsdóttur. Hitafundur fulltrúaráðs var haldinn í gærkvöldi þar sem menn töluðu út og víst er að ekki er gróið um heilt vegna klofningsins sem varð 2018 þegar H-listinn var myndaður sem klofningur úr Sjálfstæðisflokki.
Vísir hefur rætt við fjölda manns í Eyjum en svo viðkvæmt er málið að enginn vill að vitnað sé í orð sín. Ekki náðist í Eyþór Harðarson, sem er efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins, en hann gaf það út eftir prófkjör að hann falaðist ekki eftir bæjarstjórastólnum. Og seinna var það gefið út að Íris Róbertsdóttir yrði bæjarstjóraefni flokksins. Svo virðist sem margir innan Sjálfstæðisflokksins séu hreint ekki sáttir við þetta. Ekki er um heilt sé gróið eftir að H-listinn var myndaður 2018 en H-lista leiddi Íris og var bæjarstjóri í Eyjum í tvö kjörtímabil. Óánægjan er víðtæk. Öldungurinn Sigurgeir Jónasson ljósmyndari, sem fæddur er 1934, er sagður afar ósáttur og öll hans ætt. Og Sindri Ólafsson, eiginmaður Hildar Sólveigar Sigurðardóttur, sem er fimmti maður á lista, gaf það út á fulltrúaráðsfundinum í gær að hann myndi ekki styðja flokkinn við svo búið. Harðorð ályktun var lesin upp á fundinum en ákveðið var að gefa hana ekki út því talið var að hún kæmi sér ekki vel fyrir flokkinn. En svo virðist sem Sjálfstæðismenn í Eyjum séu alls ekki búnir að jafna sig eftir klofninginn sem varð 2018. Ef fram fer sem horfir er komin upp sérkennileg staða. Gert er ráð fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn nái vopnum sínum í komandi kosningum sérstaklega eftir að H-listinn lét gott heita. Þeir voru með fjóra menn í minnihluta en þurfa fimm til að ná meirihlutanum. En þá lítur út fyrir að í það minnsta tveir af fimm frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins styðji bæjarstjóraefni flokksins ekki. Fimm efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins eru eftirfarandi: Eyþór Harðarson, 62 ára, útgerðarstjóri Trausti Hjaltason, 43 ára, áhættustjóri Aníta Jóhannsdóttir, 34 ára, viðskiptafræðingur Óskar Jósúason, 47 ára, upplýsingafulltrúi Hildur Sólveig Sigurðardóttir, 43 ára, sjúkraþjálfari
Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vestmannaeyjar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Sjá meira