J. Cole slítur samningi sínum í Kína Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. apríl 2026 11:01 J Cole vakti mikla kátínu þegar hann kom til kínverska félagsins. xinhua Körfuboltamaðurinn Jermaine Cole, betur þekktur undir listamannsnafni sínu J. Cole, hefur slitið samningi sínum við kínverska liðið Nanjing Monkey Kings.
Rappstjarnan náði aðeins að spila einn leik fyrir liðið eftir að hafa skrifað undir samning í apríl. „Atvinnuleyfið tók lengri tíma en ég átti von á, þannig að ég náði bara þessum eina leik. Ég vil þakka Nanjing og kínversku deildinni fyrir að veita mér þessa mögnuðu upplifun,“ sagði tvöfaldi Grammy-verðlaunahafinn við ESPN. Hans eini leikur fyrir liðið var 95-81 tap gegn Guangzhou Loong Lions en Cole tókst ekki að skora í þeim leik, þrátt fyrir að taka fimm sinnum þriggja stiga skot. Hann gaf þó eina stoðsendingu og sló líka met sem elsti erlendi leikmaðurinn í sögu kínversku deildarinnar. Cole hitti ekki úr neinu af sínum þriggja stiga skotum. xinhua Þetta var í þriðja sinn sem 41 árs gamli rapparinn reynir fyrir sér í atvinnukörfubolta. Cole hafði áður verið á stuttum samningum hjá Rwanda Patriots árið 2021 og Scarborough Shooting Stars árið 2022. Fyrir það hafði hann ekki spilað skipulagðan körfubolta síðan í menntaskóla en alltaf verið áhugasamur um að láta reyna á hæfileikana. Hæfileikar Cole eru þó töluvert meira áberandi við míkrafóninn en hann hefur gefið út sex platínum-plötur á sínum tónlistarferli. Nýjasta plata hans, The Fall-Off, kom út í febrúar.
Körfubolti Kína Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira