Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 14. apríl 2026 21:55 Deandre Donte Kane í leiknum í kvöld en Njarðvíkingurinn Veigar Páll Alexandersson er til varnar. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Deildarmeistarar Grindavíkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta eftir sjö stiga sigur á Njarðvík í kvöld, 91-84. Grindavík tapaði fyrsta leik í einvíginu en svaraði með þremur sigrum í röð og vann því seríuna 3-1. Njarðvík var ellefu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann en Grindavík var skrefinu á undan eftir frábæran annan leikhluta. Spennan var í leiknum til loka en Grindvíkingar héldu út og lönduðu sigri. Njarðvík-Grindavík Bónus deild karla 2026Guðmundur/Vísir Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og byrjuðu heimamenn virkilega sterkt og settu stór skot strax í byrjun og byrjuðu að safna ágætis forskoti. Njarðvík var með full tök á leiknum eftir fyrsta leikhluta og leiddi nokkið sannfærandi og sanngjarnt 28-17. Dwayne Lautier og Jeremy Pargo í baráttunni í kvöldGuðmundur/Vísir Það færðist meiri hiti í leikana í öðrum leikhluta og Grindvíkingar sem virkuðu vankaðir eftir frábæra byrjun Njarðvíkinga í fyrsta leikhluta byrjuðu að taka við sér og setja góð skot niður. Það færðist örlítill skjálfti í lið Njarðvíkinga sem fóru að taka slæmar ákvarðanir og Grindavík fór að refsa. Ólafur Ólafsson setti stór skot undir lok leikhlutans og náði í forystuna fyrir Grindavík þegar nokkrar sekúndur voru eftir að fyrri hálfleik og Grindavík leiddi í hálfleik 43-45. Kristófer Breki á stórar körfur í kvöld.Guðmundur/Vísir Njarðvíkingar komu með krafti út í seinni hálfleikinn og sóttu forystuna aftur. Heimamenn náðu þó aldrei að slíta sig frá Grindvíkingum sem eltu þá eins og skugginn og þegar leið á leikhlutann náði Grindavík í forystuna aftur. Eftir þriðja leikhluta var Grindavík með fjögurra stiga forystu 64-68. Daniel Mortensen og Dominykas Milka í baráttunni í kvöld.Guðmundur/Vísir Eins og við var að búast var mikil spenna í fjórða leikhluta. Bæði lið virkuðu svolítið stressuð fyrstu um sinn og hrædd við að gera mistök. Sóknarleikurinn varð staðari og skotin örlítið brothættari. Jeremy Pargo steig upp og hristi vel upp í þessu í fjórða leikhluta og kom Grindavík í þægilega stöðu með stórum körfum. Þetta gaf Grindavík það andrými sem þeir þurftu til þess að á endanum landa frábærum sjö stiga sigri 84-91 og um leið tryggja Grindavík sigur í seríunni 3-1. Atvik leiksins Jeremy Pargo tekur yfir leikinn í fjórða leikhluta þegar hann setur stór stig og kemur Grindavík í þægilega stöðu eftir að hafa verið í fremur jöfnum leik. Stjörnur og skúrkarJordan Semple var öflugur í liði Grindavíkur og hann var stigahæstur í kvöld með 23 stig. Jeremy Pargo var að setja erfið skot og hann var eins og Rúnar Ingi þjálfari Njarðvíkur lýsti eftir leik „endakall“ sem Njarðvík komst ekki í gegnum. Hann endaði með 19 stig í kvöld.Hjá Njarðvík var Dominykas Milka með tvöfalda tvennu, 16 stig og 15 fráköst.Dómaratríóið í kvöldGuðmundur/VísirDómararnirBjarki Þór, Jóhannes Páll og Jón Þór sáu um flautuna í IceMar-höllinni í kvöld. Þetta var ekki þeirra besta frammistaða og virkaði þetta svolítið sem aðeins of stór biti fyrir tríóið í kvöld. Mikill hiti og mikið undir og línan var alls ekki skýr í kvöld.Stuðningsmenn Grindavíkur í kvöldGuðmundur/VísirStemingin og umgjörðStemningin í Njarðvík var tryllt og allt það sem við viljum fá í úrslitakeppni. Báðar stuðningsmannasveitir fá stórt hrós fyrir að gera þetta að frábærri upplifun!Stuðningsmenn Njarðvíkur í kvöldGuðmundur/VísirViðtölJóhann Þór Ólafsson fer yfir málin með sínu liði í kvöld.Guðmundur/Vísir„Fáum ágætis tíma núna til þess að stilla saman strengi upp á nýtt“„Varnarlega fannst mér við vera bara nokkuð þéttir og gera þeim erfitt fyrir lengst af“ sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir sigurinn í kvöld.„Fyrsta tilfinning er bara sú að við hittum úr stóru skotunum og þeir ekki. Það að leiðandi lendir þetta okkar meginn og við gerum vel í því. Það er svona fyrsta tilfinning strax eftir leik“Njarðvík byrjaði virkilega vel og það var mikilvægt að halda haus.„Við töluðum um það að vilja halda okkur í mómentinu og einbeita okkur bara af einni sókn í einu. Við höfum svolítið strögglað með það í gegnum þessa seríu og það er ekkert leyndarmál“„Það tókst ágætlega í kvöld og við vorum góðir í vörn sem hélt í öðrum leikhluta en svo var þetta bara stál í stál og við gerum vel að sigla þessu yfir línuna“Jóhann Þór gerði seríuna við Njarðvík upp eftir leik.„Njarðvíkingar gera bara mjög vel og sérstaklega komu okkur á óvart varnarlega eða á óvart ekki óvart, við bara leysum það illa fyrstu tvo og hálfan leikinn“„Við gerðum ágætlega í kvöld og bara hrós á þá fyrir að gera mjög vel og eins og ég hef sagt áður í viðtölum eftir þessa leiki að við þurfum að vera betur smurðir sóknarlega og ákvarðanartökur oft furðulegar og við þurfum að fara vel yfir það fyrir næstu seríu“„Við fáum ágætis tíma núna til þess að stilla saman strengi upp á nýtt og gera okkur klára fyrir það stríð“ sagði Jóhann Þór Ólafsson.Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur ræðir málin við sitt lið í kvöld.Guðmundur/Vísir„Ég er núna bara byrjaður að undirbúa næsta tímabil“„Vonbrigði, það er bara svoleiðis“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson svekktur eftir tapið í kvöld.„Við komum mjög flottir inn í leikinn. Mér fannst fyrstu fimmtán mínúturnar þá erum við bara í fullu jafnvægi og við erum að gera allt það sem við vildum gera“„Það er svona nokkurnveginn að ganga upp. Við vorum að hægja á þeim og við náðum að loka aðeins á [Jeremy] Pargo og vorum að ýta honum aðeins utar“„Það er bara eins og þeim langaði þetta meira eða trúðu meira á á þetta. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Það eru fullt af einhverjum svona klaufa mistökum og boltinn skoppar í þeirra hendur og þeir eru að fá auðveld sniðskot þegar við erum búnir að vera gera mjög vel í að spila varnarleikinn“„Það hleypir þeim inn í leikinn og á endanum er ekki mikið á milli og á meðan [Jeremy] Pargo er enn og aftur að setja fadeaway þrist í einhverjum einn á einn leik úti á kannti og við erum að búa til sniðskot en boltinn fer ekki ofan í og þá er erfitt að vinna, því miður“Njarðvíkingar eru komnir í sumarfrí og Rúnar Ingi býst við því að vera áfram þjálfari liðsins næsta tímabil.„Ég býst allavega við því. Ég er með svona plús eitt ákvæði sem að við eigum eftir og ætlum að virkja. Við höfum rætt um það og ég er núna bara byrjaður að undirbúa næsta tímabil“„Eins mikið og það er svekkjandi núna þá þarf maður að geta sleikt sárin og horfa með jákvæðum augum fram á haustið og það er stefnan mín klárlega að vera með geggjað Njarðvíkurlið sem að ætlar sér ekki að vera í fallbaráttu á næsta ári“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson. Bónus-deild karla UMF Njarðvík Grindavík