Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Stefán Árni Pálsson skrifar 14. apríl 2026 13:02 Emilíana opnar sig um erfiðan missi sem átti sér stað fyrir rúmlega tuttugu árum. Um helgina fór af stað fjórða þáttaröðin af Tónlistarmönnunum okkar á Sýn+. Eins og áður er Auðunn Blöndal umsjónarmaður þáttanna og var fyrsti gestur söngkonan ástsæla Emilíana Torrini.
Í þættinum var farið vel yfir feril hennar sem listamaður og fór umræðan einnig út í erfiða kafla í lífinu. Árið 2005 kom platan Fisherman's Woman út og sló hún rækilega í gegn. Sú plata fjallar í raun um áfall sem söngkonan varð fyrir fyrir rúmlega tuttugu árum, þegar hún missti kærastann sinn. „Hún er byggð á missi. Á þeim tíma var ég ekkert alveg að fatta það. Það var svo eðlilegt að tjá sig í gegnum tónlist. En í rauninni fattaði maður ekki alveg það sem kæmi með því. Að þú þurfir að syngja þetta á hverju kvöldi og tala um þetta alltaf. Þetta eru alveg tuttugu ár síðan,“ segir Emilíana og á þá við að það sé auðveldara að tala um þetta í dag. Hótað og varð að fara „Ég kynnist manni. Hann er að fara að gera vídeó fyrir mig sem að svo verður ekki. Ég kynnist honum í L.A. og hann er kvikmyndagerðarmaður. Við verðum ástfangin og svo ætluðum við að flytja til New York. Þetta er alla vega svona stóra sagan og áður en við förum þá er ég í miðri plötu,“ segir söngkonan sem er þá stödd í Bretlandi að vinna að plötu. Hún biður um að fara til Bandaríkjanna í tíu daga til að hitta manninn. Hún fær að fara en sú ferð var stutt. „Á endanum var mér í rauninni hótað og sagt að þau myndu ekki gefa út plötuna mína ef ég kæmi ekki strax. Þannig að ég fer. Og kvöldið sem ég í rauninni hefði átt að vera þarna þá er skotárás úti í New York. Þar eru einhverjir drepnir og maðurinn sem er skotinn missir stjórn á bílnum og keyrir kærastann minn niður. Hann deyr þarna í New York. Það fer einhvern veginn allt á haus og ég bara fer í rauninni frá plötunni,“ segir Emilíana en hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti. Þættirnir koma aðeins inn í heild sinni á Sýn+. Klippa: Missti kærastann sinn eftir skotárás í New York
Tónlistarmennirnir okkar Tónlist Sorg Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira