„Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 12. apríl 2026 19:57 Sigurður Heiðar Höskuldsson á hliðarlínunni í dag. Guðmundur/Vísir Nýliðar Þórs gerðu sér lítið fyrir og lögðu Valsmenn 1-2 á N1 vellinum á Hlíðarenda í dag þegar fyrsta umferð Bestu deild karla hélt áfram göngu sinni. Sigurður Heiðar Höskuldsson var að vonum ánægður eftir leik. „
Frábær úrslit og mjög kærkominn þrjú stig í fyrsta leik“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir sigurinn í dag. „Mér fannst við bara taka yfir þennan leik í seinni hálfleik. Mér fannst við miklu betri í svona hálftíma í seinni hálfleik“ „Í fyrri hálfleik var svona smá skjálfti í okkur og þó að hann hafi ekki verið eitthvað hræðilegur að þá var samt pínu skjálfti og mér fannst við geta verið mikið betri“ „Svo bara byrjar seinni hálfleikur og mér fannst við bara taka yfir leikinn í 25-30 mínútur en svo misstum við tökin svona skringilega en förum svo bara og sækjum þetta, skorum sigurmarkið og vinnum þetta. Það var bara hrikalega vel gert“ Þórsliðið lenti undir í leiknum en náði að jafna ekki löngu seinna sem var mikilvægt. „Það var bara frábært. Það sýnir bara ennþá meiri karakter í liðinu að hafa lent undir hérna og verið með pínu skjálfta í okkur en þá stígur Greko upp og skorar þetta mark. Það að fara jafnt inn í hálfleik var mjög mikilvægt“ „Við tókum stöðuna í hálfleik og breyttum aðeins varnarleiknum. Mér fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik fyrstu 25-30 mínúturnar“ Nýliðar Þórs eru komnir með þrjú stig á töfluna eftir fyrsta leik en skiptingar nýliðana breytti leiknum. „Það er bara frábært og við fórum einmitt og hittum stuðningsmennina fyrir leik og ég sagði þeim það að Þór hefði líklega aldrei verið með jafn mikla breidd og jafn góðan bekk og við erum með akkúrat núna og það sýndi sig svo sannarlega í dag að það er mjög kærkomið fyrir lið eins og okkur“ Stuðningurinn sem Þór fékk í dag var gríðarlega öflugur og hafði Sigurður Heiðar Höskuldsson kallað eftir þessum stuðningi fyrir leik. „Það bara segir sig sjálft. Ég kallaði aðeins eftir þessu bara eftir bikarleikinn á móti FH og þeir sýndu sig svo sannarlega á útivelli að koma hérna og slátra stúkunni og þá fylgir þetta á vellinum. Það er bara þannig“ „Maður er bara stoltur af því að vera hluti af þessu og hafa svona stuðningsmenn með stórt Þórs hjarta, það er alveg risastórt“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson.
Þór Akureyri Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira