Tinda­stóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undan­úr­slit

Arnar Skúli Atlason skrifar
Stólarnir eru komnir í undanúrslit.
Stólarnir eru komnir í undanúrslit. Vísir/Vilhelm

Tindastóll gerði sér lítið fyrir og sópaði ÍR-ingum út í sumarfrí með afar öruggum sigri í þriðja leik liðanna á Sauðárkróki í kvöld, í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta.

Tindastóll vann einvígið sem sagt 3-0 og er eina liðið sem náði því í 8-liða úrslitunum, og þar með eina liðið sem komið er í undanúrslitin. Það veltur svo á öðrum einvígum hver mótherjinn verður þar.

Lokatölur á Króknum voru 125-87 í kvöld. Það var leikið fyrir fullu íþróttahúsi á Sauðárkróki og var mikil stemning á áhorfendapöllunum.

Bæði lið voru vel tengd í fyrri hálfleik. Liðin voru að skiptast á körfum og var vörnin ekki í fyrirrúmi. Það var ekki að sjá að ÍR vantaði Dimitrios Klonaras sem var búinn að vera góður í einvíginu. Hjá ÍR var Tómas Orri Hjálmarsson gjörsamlega frábær og Tindastóll réði ekkert við hann í fyrri hálfleiknum. Hjá Tindastól var Taiwo Badmus að komast auðveldlega á á hringinn og var að sækja villur. Tindastóll voru sterkari í fyrri hálfleiknum og leiddu að honum loknum 52-48. Fyrri hálfleikurinn endaði ekki áfallalaus fyrir ÍR en þegar 0,9 sekúndur voru eftir af honum meiddist Tómas sem var langbesti leikmaðurinn þeirra og tók ekki meira þátt í leiknum.

ÍR byrjaði betur í seinni hálfleiknum og var ekki að sjá að það vantaði tvo mikilvæga leikmenn hjá þeim og náðu þeir að jafna leikinn 53-53. Þá kviknaði á Tindastóls vélinni og þeir gjörsamlega keyrðu yfir strákana úr Breiðholtinu en þriðji leikhlutinn endaði 43-11. Það voru allir leikmenn Tindastóls sem komu með eitthvað að borðinu og léku þeir á alls oddi. Eftir þetta var bara formsatriði fyrir Tindastól að klára leikinn og endaði hann án þess að verða nálægt því spennandi 125-87. Þetta þýðir að Tindastóll sópar ÍR í sumarfrí og heldur áfram í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.

Atvik leiksins

Meiðsli Tómasar í lok fyrri hálfleiks var bara of mikið fyrir ÍR. Tómas var búinn að vera besti leikmaðurinn á vellinum þegar hann meiðist og hann gat því miður ekki tekið þátt í seinni hálfleiknum.

Stjörnur

Hjá Tindastól fór mest fyrir Taiwo Badmus hann skoraði 25 stig og tók 10 fráköst. Daniel Dolenc kom með 21 stig af bekknum og Arnar Björnsson skoraði 19 stig og Dedrick Basile 18 stig. Pétur Rúnar kom inn af bekknum með 5 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar.

Hjá ÍR var Jacob Falko með 14 stig og 8 stoðsendingar og Tómas 13 stig.

Dómararnir

Þetta var vel dæmdur leikur og ekkert hægt að setja út á þá félaga.

Stemmingin og umgjörð

Geggjuð stemning í kvöld. Bæði lið með fólk í stúkunni. Grettismenn komnir í úrslitakeppnisgír.

Viðtöl

Borce þjálfari ÍR var ekki sáttur og ekki ósáttur við frammistöðuna í kvöld en ÍR liðið lenti í meiðslum fyrir leikinn og í leiknum í kvöld.

„Fyrri hálfleikur var ekki sá besti en við reyndum að vera samkeppnishæfir. Ég er ekki að reyna að finna afsökun en meiðslin hjá Tómas tekur úr róteringunni hjá liðinu sérstaklega þegar Dimitrios Klonaras er nú þegar meiddur sem er mikilvægur fyrir liðið okkar. Með þá fyrir utan þetta fundum við ekki styrk þrátt fyrir að koma til baka í þriðja leikhluta. Þrátt fyrir að að ná að jafna þá hrundi allt hjá okkur á 7 mínútum. Ég eyddi öllum leik hléunum mínum og reyndi að bregðast við. En einfaldlega vantaði meiri gæði á þessu augnabliki. Við vorum að gera mistök bæði sóknarlega og varnarlega og við hættum að spila vörn. Tindastóll nýtti sér þetta og raðaði niður þriggjastigaskotunum allstaðar og við vorum eins og boxari sem var búið að rota á þessum augnabliki. Til hamingju Tindastóll þeir voru betra lið í þessari seríu. Því miður miður nýttum við ekki okkar sénsa í leik 1 og 2. Svo hjálpuðu meiðslin á Dimitros og Tómasi okkur ekki.“

Arnar þjálfari Tindastóls var sáttur að klára þetta í kvöld.

„Gott að vera kominn áfram. Alltaf stórt skref að vinna seríu. Það eru fjögur lið á ári sem gera það og fyrsta er komið.“

Þetta var þægilegt fyrir Tindastól í kvöld og keyrðu þeir yfir ÍR í seinni hálfleik.

„Þetta breytir miklu að Dimitrios Klonaras spilar ekki og svo missa þeir Tómas sem var búinn að vera outstanding mér hefur fundist gaman að horfa á hann í vetur. Þar sem hann var ekki með og við náðum sterkri byrjun í þriðja leikhluta þá var þetta eiginlega komið bara.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira