Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. apríl 2026 10:28 Afrika Bambaataa lést í Pennsylvaníu eftir baráttu við krabbamein í ristli. Getty Afrika Bambaataa, plötusnúður, rappari og einn af guðfeðrum hipp-hopps, er látinn, 68 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Bambaataa átti stóran þátt í að móta hipphopp á níunda áratugnum og vann að útbreiðslu þess með stofnun hópsins Universal Zulu Nation. Síðustu tíu ár ævinnar var hann borinn þungum sökum um barnaníð og mansal sem hann neitaði staðfast.
Dægurmálamiðillinn TMZgreindi frá andláti Bambaataa í gærkvöldi. Þar sagði að Bambaata hefði látist í Pennsylvaníu í gær (viku fyrir 69 ára afmælið) og andlátið orsakast af aukaverkunum tengdum krabbameini í ristli. Baambaata, sem hét réttu nafni Lance Taylor, fæddist í Bronx-hverfi í New York árið 1957, sonur innflytjenda frá Jamaíka og Barbados. Taylor gekk sem táningur í gengi Svörtu spaðanna, varð fljótt mikill leiðtogi þar og gerði gengið að því stærsta í borginni. Afrika Bambaataa var brautryðjandi í svokallaðri breakbeat plötuþeytingu. Eftir að hafa ferðast til Afríku tók hann upp nafnið Afrika Bambaataa Aasim eftir Zulu-höfðingjanum Bhambatha sem gerði uppreisn gegn breskum nýlenduherrum í byrjun 20. aldar. Hann sneri aftur til Bandaríkjanna og stofnaði Bronx River Organization sem mótvægi við Svörtu spöðunum. Árið 1973 stofnaði hann síðan samtökin Universal Zulu Nation sem höfðu það að markmiði að beina ungmennum frá ofbeldi. Á áttunda áratugnum varð Bambaataa frægur í New York fyrir blokkarpartý sín þar sem hann spilaði aðallega hipphopp tónlist. Undir miklum innblæstri frá raftónlistarsveitum gaf Bambaataa út elektró-fönk-lagið „Planet Rock“ undir formerkjum Afrika Bambaataa & the Soulsonic Force. Lagið tók í óleyfi melódíuna úr „Trans-Europe Express“ og trommutaktinn úr „Numbers“ eftir þýsku raftónlistarsveitina Kraftwerk og úr varð blanda sem hafði varla sést áður. Lagið brúaði bilið milli hefðbundins hipphopps, raftónlistar og popps og er gjarnan talið eitt af áhrifamestu lögum níunda áratugarins. Bambaata var afkastamikill plötusnúður, rappari og pródúsent út feril sinn og gaf út fjölda breiðskífa, þar má helst nefna Sun City og Planet Rock: The Album. Ásakanir um barnaníð og mansal Tónlistarferill og áhrif Bambaataa hafa á síðustu tíu árum fallið í skuggann á ásökunum sem hafa verið bornar á hann. Fyrst steig Ronald Savage, aktívisti og fyrrverandi tónlistarútgefandi, fram árið 2016 og sagði Bambaataa ítrekað hafa misnotað hann þegar hann var fimmtán ára 1980. Fjöldi annarra manna steig fram í kjölfarið og sagði Bambaataa hafa misnotað þá meðan þeir voru börn og ungmenni. Eftir það var Bambaataa rekinn úr stjórnunarstöðu sinni innan Zulu Nation. Hann neitaði ásökunum staðfast og sagði þær „tilhæfulausar og heigulslega tilraun til að flekka mannorð og arfleifð“ hans í hipphoppi. Svo vildi til að Bambaataa átti að spila á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sumarið 2016 en var tekinn af dagskrá eftir að ásakanirnar komu í ljós. Árið 2021 fór rapparinn Melle Mel úr Grandmaster Flash and the Furious Five í viðtal til útvarpsmannsins DJ Vlad og sagði að allir í bransanum hafi vitað af ásökununum í garð Bambaataa og kallaði það „best geyma leyndarmál hipphopps“. Á síðasta ári tapaði Bambaataa lögsókn nafnlauss manns sem sakaði rapparann um að hafa misnotað sig og selt í mansal á árunum 1991 til 1995 þegar hann var tólf ára. Bambaataa brást ekki við lögsókninni og dæmdi dómarinn ákærandanum því í vil.
Andlát Bandaríkin Tónlist Tengdar fréttir Hip-Hop safn á að rísa í Bronx Hip-Hop goðsagnirnar Melle Mel, Afrika Bambaataa og Grandmaster Caz eru í forsvari fyrir hóp fólks sem vill koma Hip-Hop safni á laggirnar í Bronx-hverfinu í New York í Bandaríkjunum. 11. nóvember 2013 10:38 Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira
Hip-Hop safn á að rísa í Bronx Hip-Hop goðsagnirnar Melle Mel, Afrika Bambaataa og Grandmaster Caz eru í forsvari fyrir hóp fólks sem vill koma Hip-Hop safni á laggirnar í Bronx-hverfinu í New York í Bandaríkjunum. 11. nóvember 2013 10:38