Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. apríl 2026 20:39 Þórður Arason er jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands. Vísir/Lýður Valberg Mikilvægt er að leita skjóls innandyra eða í bíl þegar þrumuveður ríður yfir enda hættulegt að vera undir berum himni þegar eldingu lýstur niður. Þetta segir jarðeðlisfræðingur. Þrumuveðrið í gær hafi verið óhefðbundið að öllu leyti.
Fæstir á Suðvesturhorni landsins fóru varhluta af þeim drunum sem fylgdu þrumuveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Eldingum laust niður með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð víða á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum. Jarðeðlisfræðingur segir erfitt að setja til um hvort þrumu- og eldingaveður ríði oftar yfir nú en á árum áður en að meðaltali séu þrumudagar tveir á ári í Reykjavík. Eldingaveðrið í gær hafi ekki verið hefðbundið að neinu leyti. „Það voru mjög margar eldingar í þessu veðri í gær. Um 63° fyrir norðan voru um 850 eldingar sem er mjög mikið og meira að segja þar fyrir sunnan í hafinu voru um þrjú þúsund eldingar,“ segir Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann segir eldingaveður fáséð hér á landi samanborið við heitari lönd og því sé almenningur líklega ekki meðvitaður um hvernig best sé að bregðast við eldingaveðri. Hvernig á fólk að haga sér í svona veðri? Á fólk að halda sig heima? Stökkva úr sundlauginni eða úr bílnum? „Það var líklega enginn í sundi í gær þegar veðrið var en maður á ekki að vera úti ef maður getur. Vera bara inni í húsi eða bíll. Það er aðal atriðið.“ En er hættulegt að vera utandyra? „Já, það deyja mjög margir á jörðinni í eldingum. Það eru fá tilfelli á Íslandi en við vitum um tíu tilfelli á síðustu þúsund árum. En í útlöndum er mjög algengt að fólk deyi. Sérstaklega í fátækum löndum í hitabeltinu, þar bara hrynur fólk niður.“
Veður Tengdar fréttir Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Rafmagnið sló út á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna eldingar sem laust niður á Búrfellslínu. Flugvöllurinn var keyrður á varaafli. 7. apríl 2026 10:47 Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir íbúa á suðvesturhorni landsins geta orðið varir við eldingar í dag. Töluverður fjöldi eldinga laust niður í gær og ein á höfuðborgarsvæðinu nú í morgun. 7. mars 2026 09:59 Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sjá meira
Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Rafmagnið sló út á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna eldingar sem laust niður á Búrfellslínu. Flugvöllurinn var keyrður á varaafli. 7. apríl 2026 10:47
Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir íbúa á suðvesturhorni landsins geta orðið varir við eldingar í dag. Töluverður fjöldi eldinga laust niður í gær og ein á höfuðborgarsvæðinu nú í morgun. 7. mars 2026 09:59