„Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. apríl 2026 11:02 Viktor Jónsson og Johannes Vall fagna marki gegn KR síðasta sumar. vísir/anton Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að eftir styrkingu vetrarins hljóti ÍA að stefna á að ná Evrópusæti í sumar. Hann hefur mikla trú á Lárusi Orra Sigurðssyni, þjálfara Skagamanna.
ÍA er spáð 5. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Staða Skagamanna var ekki góð þegar tvær umferðir voru eftir af venjulegri deildarkeppni í fyrra. Þá hrukku þeir í gang undir stjórn nýja þjálfarans, Lárusar Orra, unnu fimm leiki í röð og björguðu sér frá falli. ÍA hefur látið verulega að sér kveða á félagaskiptamarkaðnum í vetur og talsverðar væntingar eru gerðar til liðsins fyrir komandi tímabil. „Ég held að miðað við það sem Skaginn hefur fjárfest í vetur þá trúi ég nú því að markmiðið hjá þeim sé að dreyma að minnsta kosti um Evrópu og svo náttúrulega þetta klassíska, þegar þú ert kominn í þennan slag, að ná svo að vinna bikarinn líka,“ sagði Bjarni er hann var beðinn um að rýna í lið ÍA. Klippa: Besta-spáin 2026 - 5. sæti „Ég myndi halda að þetta væru markmið sem Skagamenn væru að setja sér um þessar mundir ef þeir væru ekki búnir að því. Þá er það 3. sætið eða eitthvað svoleiðis og svo þá að vinna bikarinn.“ Maður til að standa undir því Bjarni segir að í sumar séu annars konar kröfur til Lárusar Orra en þegar hann tók við ÍA um mitt síðasta sumar. „Hann fer inn í umhverfi sem hann leysir ofboðslega vel í fyrra og gerir það af miklum krafti og með miklum sóma. Þetta er annað, að fara í gegnum heilt undirbúningstímabil og nú er hann bara dæmdur almennilega af því sem að liðið á eftir að sýna,“ sagði Bjarni. „Svo er það hitt alltaf sem bætist líka í pressu á þjálfara, það er þegar það er fjárfest meira í leikmannahópnum sem þú ert með og þeir eru heldur betur búnir að stíga fast niður þar. Þetta verður krefjandi verkefni. En ég held að Lárus Orri sé maður til að standa undir því og hann gerir þetta væntanlega með miklum sóma.“ ÍA sækir Fram heim í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 19:30 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira