Fékk leyfi til að fara í meðferð utan Bandaríkjanna Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. apríl 2026 22:34 Tiger Woods mun leita í meðferðarúrræði utan Bandaríkjanna. Adam Glanzman/TGL/TGL Golf via Getty Images Tiger Woods hefur ákveðið að leita sér hjálpar og fengið formlegt leyfi fyrir því að sækja sér meðferðarúrræði utan Bandaríkjanna, sem hann gerir af ótta við trúnaðarbrest.
Tiger tilkynnti fyrr í dag að hann myndi ekki taka þátt á Masters-mótinu um næstu helgi. Hann er kominn í ótímabundið frí frá golfi eftir að hafa valdið bílslysi um síðustu helgi og ætlar ekki að baða sig í sviðsljósinu á næstunni. Lyfseðilsskyld verkjalyf fundust á Tiger þegar hann var handtekinn eftir bílslysið og hann er ákærður fyrir akstur undir áhrifum. Tæknilega séð þurfti Tiger samt ekki að sækja um leyfi til að fara úr landi en lögmaður hans gerði það í þágu gagnsæis. Dómarinn veitti leyfið og Tiger er frjálst að ferðast í meðferðarúrræði erlendis. Lögmaðurinn sagði það nauðsynlegt til að tryggja friðhelgi einkalífs Tigers. Tiger hafði gefið í skyn en ekki staðfest þátttöku sína á Masters-mótinu sjálfu, sem fer fram næstu helgi. Hann hafði hins vegar staðfest komu sína í kvöldverðinn og á sýningarviðburð sem fer fram sömu helgi á Augusta golfvellinum, en fyrr í dag tilkynnti mótsstjórinn að Tiger myndi ekki mæta.
Golf Tengdar fréttir Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur neitað sök í ákærum á hendur honum í kjölfar handtöku á föstudaginn í síðustu viku. 31. mars 2026 22:21 Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Golfgoðsögnin Tiger Woods varð valdur að bílslysi í fjórða sinn á ferlinum í gærkvöldi. Hann getur þó prísað sig sælan að hafa sloppið ómeiddur í þetta sinn. 28. mars 2026 12:15 Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira
Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur neitað sök í ákærum á hendur honum í kjölfar handtöku á föstudaginn í síðustu viku. 31. mars 2026 22:21
Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Golfgoðsögnin Tiger Woods varð valdur að bílslysi í fjórða sinn á ferlinum í gærkvöldi. Hann getur þó prísað sig sælan að hafa sloppið ómeiddur í þetta sinn. 28. mars 2026 12:15