Upp­gjörið Stjarnan - KR 97-86 | Stjarnan tók öll völd í seinni hálf­leik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Frá leik Stjörnunnar og KR í bikarúrslitum fyrr á tímabilinu
Frá leik Stjörnunnar og KR í bikarúrslitum fyrr á tímabilinu Vísir/Anton Brink

Stjarnan fór með sigur af hólmi, 97-86, þegar liðið mætti KR í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í ÞG Verk-höllinni í Ásgarði í kvöld.

Leikstíll beggja liða skein í gegn í þessum leik sem var bæði hraður og skemmtilegur.

Stjarnan fór betur af stað í leiknum en leikmenn KR-liðsins hrukku í gang um miðjan fyrsta leikhluta og gestirnir úr Vesturbænum voru 28-31 yfir eftir fyrsta fjórðung og leiddu 51-55 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik.

Stjörnumenn réðu illa við Linards Jaunzems á póstinum og undir körfunni framan af leik. Linards var kominn með 18 stig í hálfleik. Samvinna Linards og Þóris Guðmundar Þorbjarnarsonar er vel slípuð. Þórir var með 13 stoðsendingar í leiknum og þó nokkrar af þeim voru á Linards.

Jafnræði var með liðunum fram í miðjan þriðja leikhluta en þá hrukku Stjörnumenn í gang svo um munaði. Stjarnan næáði 15-3 kafla sem skilaði þeim 11 stiga forystu, 75-64, inn í fjórða og síðasta leikhluta. 

Stjarnan hamraði heitt járnið í upphafi fjórða leikhluta en Giannis Agravanis og Ægir Þór Steinarsson skoruðu sex fyrstu stig leikhlutans. 

Lettneski miðherjinn Rinalds Malmanis var fjarri góðu gamni í þessum leik vegna hnémeiðsla. KR-ingar söknuðu Rinalds í frákastabaráttunni en Stjarnan tók 59 fráköst í þessum leik leik á móti 48 hjá KR. 

Atvik leiksins

Þorvaldur Orri Árnason skoraði fjögur stig í röð fyrir KR undir lok leiksins og minnkaði muninn í sex stig, 90-84. Þá kom þriggja stiga karfa frá Hilmari Smára Henningssyni sem gerði endanlega út um leikinn. 

Stjörnur og skúrkar

Stjörnumenn fengu jafnar og góðar frammistöður frá byrjunarliðsleikmönnum sínum. Giannis Agravanis var stigahæstur með 20 stig en Hilmar Smári kom þar á eftir með 19 stig. Giannis Agravanis tók einnig 10 fráköst en Seth Leday hirti 16 fráköst. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Kristinn Óskarsson, Davið Kristján Hreiðarsson og Ingi Björn Jónsson,

Stemming og umgjörð

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira