Lokun Hormússunds: Takmörkuð áhrif á áburðarverð til bænda í ár en óvíst um framhaldið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. mars 2026 10:12 Innlendir birgjar og flestir viðskiptavinir þeirra hafa þegar tryggt sér áburð fyrir árið. Lokun Hormússunds vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum mun hafa takmörkuð áhrif á áburðarverð á Íslandi í ár, þar sem innlendir birgjar hafa þegar tryggt sér áburð fyrir árið.
Dragist ástandið á langinn gæti þetta hins vegar breyst. „Hér á landi er algengt að áburður sé keyptur í stærri samningum með góðum fyrirvara líkt og við gerðum, ólíkt því sem víða tíðkast í Evrópu þar sem kaup fara fram frá mánuði til mánaðar þá með hækkandi verði sem hefur bein áhrif strax,“ segir Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar, sem tryggði sér áburð fyrir áramót. Unnar Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Líflands, tekur í sama streng. „Áhrif á Lífland verða lítil sem engin á yfirstandandi sölutímabili, sem er langt komið, utan þess að líklega verður minna pantað af umframáburði til að eiga inn í vorið. Lífland gerði seint á liðnu ári magnsamninga um áburð sem standa og verja fyrirliggjandi pantanir fyrir breytingum vegna ástandsins sem nú blasir við,“ segir Unnar. Um 30 prósent áburðar fer um Hormússund Unnar bendir á að dragist óvissuástandið hins vegar á langinn sé ljóst að áburðarverð muni hækka næsta vetur, enda hafi það þegar hækkað erlendis. Úlfur segir vonir standa til að þær verðhækkanir sem þegar hafi átt sér stað vegna átakanna muni ganga til baka en það sé þó óvíst á þessari stundu. Innleiðing CBSM-reglugerðarinnar, kerfisins sem í gildi er um kolefnisjöfnunargjald við landamæri, hafi þegar haft áhrif til hækkunar til lengri tíma litið. „Sérstaklega á þetta við um köfnunarefnisáburð þar sem framleiðsla er háð gasverði, sem hefur tekið miklum hækkunum, á sama tíma hefur hækkandi olíuverð haft mikil áhrif á flutningskostnað og aðra þætti áburðarframleiðslu,“ segir Úlfur. Um það bil 30 prósents alls áburðar í heiminum fer um Hormússund og áhyggjur eru uppi um að lokun þess gæti haft veruleg áhrif á matvælaframleiðslu og þar af leiðandi fæðuöryggi.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Matvælaframleiðsla Landbúnaður Hernaður Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira