Nýjasti spennutryllir Hildar Knúts gerður að kvikmynd Lovísa Arnardóttir skrifar 25. mars 2026 11:14 Skogland segist spennt að taka við þessu verkefni. Samsett Kari Skogland mun leikstýra nýrri kvikmynd sem byggð er á bókinni Gestir eftir Hildi Knútsdóttir. Skogland hefur áður leikstýrt House of Cards og Handmaid's Tale.
Kvikmyndin verður framleidd af íslenska framleiðslufyrirtækinu Act4 ásamt Mad Rabbit Productions. Í tilkynningu segir að búa eigi til kvikmynd byggða á sögu Hildar í í samstarfi við Kari Skogland, sem jafnframt mun leikstýra myndinni. Hildur Knútsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka fyrir bæði börn og fullorðna en er hvað þekktust fyrir uggvænlegar hrollvekjur sínar. Gestir, sem kom út á síðasta ári, er blóðugur spennutryllir sem hefur hlotið lof gagnrýnenda. Bókin kemur út á ensku þann 26. maí undir titlinum Dead Weight. Variety greindi fyrst frá. „Ég skrifaði Gesti upphaflega sem leikrit, þannig að ég held hún henti mjög vel til aðlögunar. Ég er búin að fylgjast með Act4 síðan fyrirtækið var stofnað og hef mikla trú á því að þau muni gera eitthvað frábært úr bókinni og ég er bara ótrúlega spennt að fá að fylgjast með ferlinu af hliðarlínunni,“ segir Hildur í tilkynningu. Leikskýrði House of Cards og Handmaid's Tale Skogland er frá Kanada og hefur leikstýrt fjölda þekktra kvikmynda og sjónvarpsþátta, þar á meðal The Falcon and the Winter Soldier, The Handmaid’s Tale, House of Cards, Vikings og sjónvarpsþáttaröðinni 121212 sem væntanleg er á Apple TV+. „Við hjá Act4 erum afar spennt að færa verk Hildar yfir á hvíta tjaldið. Hún er ein ferskasta og áhugaverðasta rödd íslenskra bókmennta um þessar mundir og sagan er bæði persónuleg og hentar vel fyrir kvikmyndaformið,“ segir Ólafur Darri Ólafsson, leikari, framleiðandi og einn eiganda Act4. Kari Skogland mun leikstýra myndinni. Aðsend Hann vann með Skogland að NOS4A2 og nýverið að 121212 fyrir Apple TV+. „Við höfum lengi verið að leita að réttu sögunni sem gerir okkur kleift að vinna saman á ný og bók Hildar hentar okkur fullkomlega. Það er enginn kvikmyndagerðarmaður betur til þess fallinn að miðla þessu efni til alþjóðlegs áhorfendahóps en Kari. Með hennar sýn við stjórnvölinn hlökkum við til að deila þessari mögnuðu sögu með heiminum,“ segir Ólafur Darri enn fremur. Heillaðist af sögunni Skogland segist strax hafa heillast af sögunni þegar hann kynnti hana fyrir henni. „Þegar hann kynnti bók Hildar, Gestir, fyrir mér laðaðist ég strax að kvenlegri rödd hennar og ófullkomnum sögupersónum sem fylgja manni lengi eftir að lestri er lokið. Ég hlakka til að koma sögunni á skjáinn með Act4.” Act 4 var stofnað í ársbyrjun 2023 af þeim Jónasi Margeir Ingólfssyni, Ólafi Darra Ólafssyni, Herði Rúnarssyni og Birki Blæ Ingólfssyni. Fyrirtækið framleiddi meðal annars sjónvarpsþáttaröðina Reykjavík Fusion sem frumsýndir voru í Sjónvarpi Símans Premium í september á síðasta ári.
Bókmenntir Kvikmyndagerð á Íslandi Hollywood Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Sjá meira