Haukar - KR 82-67 | Haukar vörðu deildarmeistaratitilinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. mars 2026 18:33 Haukar eru deildarmeistarar Bónus deildar kvenna 2025-26. vísir / anton brink Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka vörðu deildarmeistaratitilinn í Bónus deild kvenna með 82-67 sigri gegn KR í úrslitaleik í lokaumferðinni. Haukar voru þarna að vinna sinn sjöunda deildarmeistaratitil og verða með heimavallarréttinn í úrslitakeppninni. Þær þekkja það frá því í fyrra hversu mikilvægur heimavallarrétturinn er en þá unnu þær Íslandsmeistaratitilinn í oddaleik. Haukakonur fagna titlinum.vísir / anton brink KR tókst aftur á móti ekki að verða fyrstu nýliðar sögunnar til að verða deildarmeistarar. Þær duttu niður í þriðja sæti deildarinnar því Njarðvík vann sinn leik. Þá er líka ljóst að Haukar munu mæta Stjörnunni og KR mun mæta Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Skjálfti í upphafi en KR byrjaði betur Leikurinn bar þess greinileg merki að í honum væri mikið undir. Liðin byrjuðu bæði frekar illa, sýndu skjálfta í sóknarleiknum og skutu alveg skelfilega. Bæði lið 0 af 6 í þristum eftir fyrsta leikhluta. KR keyrði vel á Haukana í upphafi leiksvísir / anton brink KR tókst hins vegar að keyra vel á körfuna og Haukavörnina sem var ekki alveg vöknuð, en eftir leikhlé og smá skammir frá þjálfaranum varð varnarleikurinn skarpari. Haukarnir þurftu að hrista úr sér skjálftann í leikhléi. vísir / anton brink Sóknarleikur Hauka var hins vegar frekar einsleitur í upphafi og ef Amandine Toi eða Krystal Freeman sköpuðu sér ekki skot sjálfar þá virtist lítið gerast. KR var þannig með yfirhöndina í upphafi leiks. 17-20 forystu eftir fyrsta leikhluta og eftir að hafa loksins sett þriggja stiga skot stækkaði forystan í 22-26 í upphafi annars leikhluta. Allt í einu hrökk allt í gang hjá Haukum Haukarnir sættu sig ekki við stöðuna og spýttu skyndilega í lófana. KR komst lítið áleiðis í seinni hálfleik. Allt í einu hrökk bara allt í gang, vörnin varð betri, Amandine og Krystal voru samar við sóknarlega en aðrir leikmenn komust líka vel inn í leikinn. Þóra Kristín, sem hafði látið fara lítið fyrir sér, setti mikilvæg skot og staðan stóð 38-32 fyrir Haukum í hálfleik. Villuvandræði og meira vesen hjá KR Í upphafi seinni hálfleik jukust vandræði KR því Rebekka Rut og Jiselle Thomas, sem höfðu verið hvað öflugastar og stigahæstar hjá KR í fyrri hálfleik, fengu sínar þriðju villur og settust á bekkinn. Mikið mæddi þá á Molly Kaiser en hún komst ekki almennilega inn í leikinn. Haukar gengu á lagið Haukar nýttu heldur betur tækifærið og gjörsamlega kaffærðu KR í þriðja leikhlutanum. Leikurinn varð bara að einhverri Haukaveislu og það var vel við hæfi að afmælisbarnið Sólrún Inga setti þrjá þrista í röð til að loka stórkostlegum þriðja leikhluta hjá Haukum. Staðan þá 69-47 og vonir KR um að verða fyrstu nýliðar sögunnar til að vinna deildarmeistaratitilinn voru nánast horfnar. Eftir að hafa varla hitt úr skoti fyrir aftan línuna byrjaði KR allt í einu að hitta úr þristum í fjórða leikhluta. Þannig tókst að minnka muninn aðeins en Haukarnir héldu KR-ingum alltaf í hæfilegri fjarlægð. Sigur í höfn!vísir / anton brink Viðtöl Atvik leiksins Leikhlé sem Emil Barja, þjálfari Hauka, tekur snemma. Eftir svona sjö mínútur. Haukakonur alls ekki sjálfum sér líkar en fóru að spila vel fasta vörn eftir það. Eitthvað sem segir manni að það hafi verið skilaboðin sem voru send í þessu leikhléi. Stjörnur og skúrkar Sólrún Inga Gísladóttir stal senunni í þriðja leikhluta þegar hún setti þrjá þrista í röð, á þrítugsafmælisdaginn. Amandine Toi og Krystal Freeman voru annars allt í öllu hjá Haukum. Rebekka Rut og Jiselle Thomas voru öflugar hjá KR, þangað til þær lentu í vandræðum. Molly Kaiser náði sér ekki á strik. Stemning og umgjörð Ekki hægt að kalla þetta húsfylli en svona annað hvert sæti setið. Stemningin þokkaleg en leikurinn auðvitað lítið spennandi. Trommukjuðarnir hjá Haukum eru allavega búnir að hita vel upp fyrir úrslitakeppnina, vonandi verða fleiri syngjandi og trallandi þar. Dómarar Fá framúrskarandi einkunn fyrir sína frammistöðu. Bónus-deild kvenna Haukar KR