Bændurnir í Gunnbjarnarholti hlutu landbúnaðarverðlaunin Atli Ísleifsson skrifar 23. mars 2026 13:38 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra við afhendingu landbúnaðarverðlaunanna 2026 ásamt Hauki Arnarsyni, Arnari Bjarna Eiríkssyni og Berglindi Bjarnadóttur, ábúendum í Gunnbjarnarholti. Stjr Bændurnir í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þau Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir, tóku við landbúnaðarverðlaununum fyrir árið 2026 úr hendi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra á Búnaðarþingi fyrr í dag.
Búnaðarþing fer fram dagana 23. til 25. mars en verðlaunin voru fyrst veitt árið 1997.„Gunnbjarnarholt er dæmi um nútímalegt íslenskt bú þar sem hefðbundinn landbúnaður er sameinaður nýsköpun, beinni sölu og aukinni tengingu við neytendur“ sagði atvinnuvegaráðherra við afhendingu landbúnaðarverðlaunanna „Það er einstaklega ánægjulegt að fá að verðlauna svo glæsilegan búrekstur eins og finna má í Gunnbjarnarholti.“ Á vef ráðuneytisins segir að Gunnbjarnarholt sé fjölskyldurekið kúabú og eitt stærra mjólkurframleiðslubú landsins. „Búið er í eigu hjónanna Arnars Bjarna Eiríkssonar og Berglindar Bjarnadóttur, sem tóku við rekstrinum árið 1990 en kúabúskapur hefur verið stundaður í fjölskyldunni allt frá því lok 18. aldar. Rekstur búsins byggist fyrst og fremst á kúabúskap og mjólkurframleiðslu. Þar hefur verið byggt upp stórt og tæknivætt fjós sem gerir búinu kleift að vera í fremstu röð í íslenskum landbúnaði. Þar eru nú um 230 mjólkandi kýr og fjórir mjaltaþjónar, en alls um 500 nautgripir. Samhliða hefðbundinni framleiðslu hefur búið lagt aukna áherslu á vinnslu og beina sölu afurða til neytenda. Eigin framleiðsla seld beint frá býli Árið 2021 hófu ábúendur eigin mjólkurvinnslu undir vörumerkinu Hreppamjólk. Þar er framleidd og seld mjólk og aðrar mjólkurvörur beint frá býli sem má m.a. fá í almennum matvöruverslunum Vöruúrvalið hefur síðan aukist og inniheldur til dæmis skyrdrykki, jógúrt og fleira, og hefur framleiðslan vakið athygli fyrir að vera fersk og nálægt uppruna sínum. Dóttir Berglindar og Bjarna, Margrét Hrund Arnarsdóttir, starfar við fyrirtækið og hefur gegnt lykilhlutverki í þróun Hreppamjólkur. Auk búreksturs reka eigendurnir einnig fyrirtækið Landstólpa sem þjónustar landbúnað, sem undirstrikar fjölbreytta starfsemi á jörðinni. Það flytur m.a. inn margs konar rekstrarvörur og búnað fyrir landbúnaðinn auk þess að vera umsvifamikið í sölu og byggingu stálgrindahúsa fyrir landbúnaðarstarfsemi og það sem henni tengist. Gunnbjarnarholt hefur jafnframt verið opnað almenningi við ýmis tækifæri þar sem gestir geta kynnt sér sveitalífið og keypt afurðir beint frá framleiðendum. Þá hafa verið uppi áform um frekari uppbyggingu þjónustu á svæðinu, meðal annars tengda ferðaþjónustu og kynningu á íslenskri matvælaframleiðslu. Verðlaunagripur landbúnaðarverðlaunanna ber heitið „Biðukolla“ og er gerður af Matthíasi Rúnari Sigurðssyni myndhöggvara,“ segir í tilkynningunni.
Landbúnaður Skeiða- og Gnúpverjahreppur Kýr Matvælaframleiðsla Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira