Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2026 09:15 Fatih Birol, forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar, varar við því að öll ríki heims muni finna fyrir orkukreppunni nú. Vísir/EPA Áhrif orkukreppunnar vegna árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran nú eru meiri en tveggja olíukreppa á 8. áratugnum og innrásarinnar í Úkraínu samanlagt. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur þjóðarleiðtoga hafa ekki gert sér greint fyrir alvarleikanum.
Sprengjuárásir Bandaríkjamanna og Ísrael á Íran og gagnárásir Írana á nágrannaríki hafa valdið skemmdum á tugum orkumannvirkja. Írana halda einnig Hormússundi, einni mikilvægustu siglingarleið olíuflutningaskipta í heminum, í heljargreipum Samdráttur í framboði á olíu hefur þegar snarhækkað verð á henni. Olíuverð fór í tvígang upp úr öllu valdi á áttunda áratug síðustu aldar. Fyrst gerðist það í svonefndu Jom kippúr-stríði Egypta og Sýrlendinga gegn Ísrael árið 1973 og svo aftur í kjölfar byltingarinnar í Íran árið 1979. Fatih Birol, forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA), segir að framboð á olíu hafi dregist saman um fimm milljónir tunna á dag í kreppunum tveimur. Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu hafi um 75 milljarðar rúmmetra af jarðgasi horfið af alþjóðlegum mörkuðum. Vargöldin í Íran og nágrenni hefur hins vegar þegar kippt um ellefu milljónum tunna úr umferð á dag og um 140 milljörðum rúmmetra af gasi. „Þessi kreppa, eins og sakir standa núna, jafnast á við tvær olíukreppur og eina gaskreppu samanlagt,“ sagði Birol á viðburði í Ástralíu, að sögn breska dagblaðsins The Guardian. Fólk vinni heima, keyri hægar og fljúgi minna Alþjóðaorkumálastofnunin hvatti ríki heims til ýmis konar ráðstafana til þess að draga úr eftirspurn eftir olíu í síðustu viku. Lagði hún meðal annars til að fólk yrði hvatt til þess að vinna heima hjá sér, hámarkshraði á hraðbrautum yrði lækkaður tímabundið og dregið yrði úr flugferðum. Birol segir að einfaldasta lausnin á kreppunni nú sé að opna Hormússund aftur fyrir siglingum. Bandaríkjamenn og Ísraelar virðast ekki hafa gert sérstakar ráðstafanir vegna Hormússund áður en þeir ákváðu að hefja sprengjuárásir á Íran og myrða leiðtoga landsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur haft í frekari hótunum við írönsk stjórnvöld ef þau halda áfram að teppa skipaumferð um Hormússund. Hann hefur ýmist sagt að Bandaríkin þurfi hjálpa bandamanna til að tryggja sundið og að þau þurfi ekki á aðstoðinna að halda.
Orkumál Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Donald Trump Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent